Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

23.5.2007

Úr stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar

Tannvernd barna verði bætt með gjaldfrjálsu eftirliti, forvarnaraðgerðum og auknum niðurgreiðslum á tannviðgerðum barna. Barnabætur verði hækkaðar til þeirra sem hafa lágar tekjur og nemendur í framhaldsskólum fái stuðning til kaupa á námsgögnum. Sérstaklega verði hugað að stuðningi við bön innflytjenda ískólakerfinu. Jafnframt verði aukinn stuðningur við langveik börn, börn með hegðunarvandamál, geðraskanir og þroskafrávik.

Þegar í stað verði gripið til aðgerða til að vinna á biðlistum á því sviði.
Hugað verði að foreldraráðgjöf og – fræðslu.
Forvarnastarf gegn kynferðislegu ofbeldi verði eflt og stuðningur við fjöskyldur ungmenna, sem eiga í vanda vegna vímuefnaneyslu, aukinn. Fæðingarorlofið verði lengt í áföngum.

Skapað verði svigrúm til fjöbreytilegri rekstrarforma í heilbrigðisþjónustu, m.a. með útboðum og þjónustusamningum, en jafnframt tryggt að allir hafi að henni jafnan aðgang, óháð efnahag.

Vegna ofangreindra atriða er tannlæknastéttinni nauðsynlegt að hafa alla samvinnu og samstarf við opinbera aðila vel skilgreint.  Það var meginatriði í þeim samning er kosið var um á síðustu tveimur vikum. Vonandi hafa tannlæknar borið gæfu til að hafna öfgum og kreddum í þeirri atkvæðagreiðslu og samningurinn taki því gildi. Þannig er tryggt að félagar í TFÍ  hafi frá upphafi áhrif á framkvæmd þessara markmiða nýrrar ríkistjórnar. Minnist ég þess ekki að tekið hafi verið sérstaklega á tannheilsumálum barna í stjórnarsáttmálum síðustu ríkisstjórna.

Sigurjón Benediktsson formaður TFÍ


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «Febrúar 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar