Fréttir
29.5.2007
F R É T T A T I L K Y N N I N G frá Tannlæknafélagi Íslands
Niðurstaðan er sú að tannlæknar í TFÍ samþykktu samninginn sem lagður var fyrir. Á kjörskrá voru þrjúhundruð tuttugu og átta tannlæknar. Eitthundrað sjötíu og níu tannlæknar eða 55 % af félögum TFÍ tóku þátt í póstkosningunni, já sögðu 109 eða 61%. Meirihluta þátttakenda í póstkosningu þurfti til að samningur væri samþykktur fyrir hönd félagsins. Þess ber að geta að starfandi tannlæknar á Íslandi eru 284.
Í samræmi við reglur póstkosningarinnar hefur öllum kjörgögnum, nema undirskrift frá þeim sem gerðust aðilar að samningnum í póstskosningunni, verið eytt, undir umsjón og á ábyrgð fulltrúa sýslumanns. Tannlæknar geta gerst aðilar að samningnum hvenær sem er á samningstímanum sem er til 31. desember 2008.
Stjórn félagsins hefur engar ákvarðanir tekið um framhald málsins en niðurstaðan hefur verið tilkynnt formanni samninganefndar SHTR og ráðherra heilbrigðismála. Samkvæmt samningnum átti hann að taka gildi 1. júní n.k..
Stjórn Tannlæknafélags Íslands
Mynd












