Fréttir
27.8.2007
Til athugunar vegna nýgerðs samnings TFÍ og heilbrigðisráðuneytis
- Til að svo mætti verða var endurgreiðslugjaldskrá ráðherra breytt með auglýsingu þann 12. júlí 2007 um 3. breytingu á gjaldskrá nr. 898/2000 þannig að gjaldliður 012 er skilgreindur sem bitröntgenmynd en nýr liður 011 nær yfir aðrar röntgenmyndir. Þetta gildir fyrir alla tryggingaþega
- Þannig mun TR endurgreiða sjúklingum allt að því fimm röntgenmyndir (eins og áður) á hverju tólf mánaða tímabili þó þannig að að 012 er hámark x2 og 011 er hámark x3
Mikilvægt er því að tannlæknar færi aðeins 012 fyrir bitröntgen og 011 fyrir aðrar smáröntgenmyndir til að tryggja sjúklingum okkar rétta endurgreiðslu frá TR
Úr gjaldskrárskýringum ráðherragjaldskrár:
011 Röntgenmynd Smámyndir, aðrar en bitmyndir, svo sem periapical eða occlusal röntgenmyndir. Röntgenmyndir skal auðkenna með nafni og/eða kennitölu sjúklings ásamt tökudegi og varðveita varanlega. Greining, úrvinnsla og varanleg varðveisla innifalið. Röntgenmyndir við upphaf og lok meðferðar eru innifaldar í öllum liðum vegna rótfyllinga, krónu- og brúargerðar, tannplanta og upphafsmyndir vegna 510-536 og stoðtanna ásetugóma og parta í gjaldliðum 704, 711-713 og endurgreiðast því ekki með þeim (merkt „R” í skýringum viðkomandi gjaldliða). Endurgreiðist mest þrisvar sinnum á einu almanaksári. Gjaldliðinn má nota fyrir stafrænar röntgenmyndir jafnt sem filmur og eru skilyrði um auðkenningar og varðveislu þeirra hin sömu. Eftirtaka og fjölföldun endurgreiðist ekki sérstaklega.
012 Röntgenbitmynd (Bite-Wing) Röntgenmyndir skal auðkenna með nafni og/eða kennitölu sjúklings ásamt tökudegi og varðveita varanlega. Greining, úrvinnsla og varanleg varðveisla innifalið. Endurgreiðist mest tvisvar sinnum á einu almanaksári. Gjaldliðinn má nota fyrir stafrænar röntgenmyndir jafnt sem filmur og eru skilyrði um auðkenningar og varðveislu þeirra hin sömu. Eftirtaka og fjölföldun endurgreiðist ekki sérstaklega. Gjaldliðurinn telst innifalinn í gjaldliði 1012 (sem kemur fram í samningi TFÍ og SHTR) og greiðist hvorki samtímis honum né á næstu tólf mánuðum eftir að 1012 hefur verið greiddur fyrir tryggðan einstakling.
Sigurjón Benediktsson
Mynd












