Fréttir
30.8.2007
Svæfingar í tannlækningum
Frá ráðuneytinu mættu þau Jóni Sæmundur Sigurjónsson og Helga Ágústsdóttir, tannlæknarnir Daði Hrafnkelsson, Helgi Hansson, Magnús Kristinssson, Ólafur Höskuldsson og
Fram kom á fundinum að svæfingalæknar treysta sér ekki til að svæfa sjúklinga tannlæknastofum sem eru ekki með fullkomna aðstöðu. Þeir svæfingalæknar sem hafa sinnt svæfingum á stofum tannlækna eru hættir því og þessvegna hefur myndast biðlisti sjúklinga sem þurfa á svæfingu að halda.
Tr hefur gert samning við St. Jósepspítala um að fram að áramótum verði skurðstofa spítalans opin einn dag í viku (föstudag) fyrir svæfingar sjúklinga tannlækna. Þetta eru ellefu föstudagar og aðgerðir geta verið 3-4 yfir daginn. Nú þegar eru biðlistar eftir svæfingum og þeir tannlæknar sem stjórn spítalans kvaddi til fundar ætla að nýta sér þessa aðstöðu. Ljóst er að engan veginn næst að tæma biðlista með þessum aðgerðum. Á síðasta ári greiddi Tr fyrir 477 svæfingar 19 milljónir króna vegna tannlækninga.
Fram kom í máli ráðuneytismanna að Landspítali og Sjúkrahúsið Akranesi hafi boðið samskonar þjónustu ef Tr óskar þess og greiði fyrir þjónustuna. Slík þjónusta er nú þegar í boði á Sjúkrahúsinu Akureyri
Fulltrúi félagsins benti á að félagið teldi eðlilegt að allir tannlæknar hefðu aðgang að slíkri þjónustu á jafnréttisgrundvelli og það hlyti að vera sameiginlegt áhugamál allra að svæfingar yrðu neyðarúrræði tannlækna og sjúklinga vegna tannlækninga. Jafnframt kom formaður því á framfæri að svæfingarlæknum yrði gert kleift að vinna á tannlæknastofum og þá stæði tannlæknum næst að útbúa slíkar stofur sem standast kröfur svæfingalækna og Tr bæri að semja við svæfingarlækna um þá vinnu .
Fundurinn bar þann árangur að svæfingar neyðartilfella hófust föstudaginn 24. ágúst , daginn eftir fundinn, og hlýtur það að vera heimsmet í skilvirkni opinberrra aðgerða.
Félagið vill benda þeim tannlæknum sem þurfa á þjónustu svæfingarlækna að halda að haf samband við Dórotheu Sigurjónsdóttur á St. Jósefsspítala. Þar er fullkomin svæfingaraðstaða en frekar er aðstaða til lækning tanna og munns bágborin. Tannlæknar hafa þar aðgang að færanlegu tannlæknatæki ásamt sogi en allt annað þurfa tannlæknar að koma með sjálfir, sterilt og innpakkað.
Þessi lausn eru viðbrögð ráðuneytis við aðsteðjandi vanda en tannlæknir eru hvattir tril að hafa samband við skrifstofu félagsins hafi þeir eitthvað til málanna að leggja. Félagið mun kanna hvort ekki sé hægt að nýta þær aðstöður sem fyrir hendi eru hjá tannlæknum til svæfinga svo framarlega sem það uppfyllir kröfur um svæfingar og annað.
Mynd












