Fréttir
13.9.2007
Nýr vefur Doktor.is
Meðal nýjunga á vefnum má nefna nýja lyfjahandbók með margvíslegum upplýsingum um öll lyf sem skráð eru á Íslandi. Einnig býðst fagfólki í heilbrigðisgeiranum að skrá grunnupplýsingar um starfsemi sína í þjónustuskrá. Henni er ætlað að auðvelda aðgengi almennings að upplýsingum um þá fjölbreyttu þjónustu á heilbrigðissviði sem honum stendur til boða.
Markmiðið með Doktor.is er að almenningur hafi á einum stað aðgang að áreiðanlegum upplýsingum á íslensku um heilsufar, hollustu, sjúkdóma, lyf og önnur heilsutengd málefni. Áhersla er lögð á að allt efni á síðunni sé skrifað af fagfólki og að umfjöllunin sé aðgengileg og skiljanleg öllum þeim er leita sér þar upplýsinga.
Á vefsíðunni eru einnig vinsælir spjallþræðir þar sem notendur vefsins geta deilt reynslu sinni og hagnýtum upplýsingum sem varða heilbrigðismál. Þar er ennfremur að finna ítarlegar upplýsingar um meðgöngu frá einni viku til annarrar, sjálfsgreiningarpróf, fréttir af heilbrigðismálum, tenglasafn með upplýsingum um aðra íslenska heilsuvefi og ýmislegt fleira.
Áskrifendur að Doktor.is hafa aðgang að enn víðtækari þjónustu en almennir notendur. Þeim gefst meðal annars kostur á að spyrja sérfræðinga ráða með því að senda inn fyrirspurnir og fá ráðgjöf og upplýsingar um heilsutengd málefni.
Notendum Doktor.is hefur fjölgað jafnt og þétt frá opnun hans árið 1998, samkvæmt samræmdri vefmælingu Modernus. Að meðaltali heimsækja um 13.000 manns vefsíðuna í hverri viku og flettingar á henni eru að meðaltali um 24 þúsund á dag.
Að baki Doktor.is stendur fyrirtækið InPro sem er þjónustufyrirtæki á sviði heilsuverndar, vinnuverndar og heilbrigðisþjónustu. Ritstjóri er Unnur Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
Nánari upplýsingar:
Unnur Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ritstjóri Doktor.is, sími: 893 9316
Um InPro – eiganda og rekstraraðila Doktor.is
InPro er þjónustufyrirtæki á sviði heilsuverndar, vinnuverndar og heilbrigðisþjónustu. Í janúar árið 2007 var ný fyrirtækjaímynd InPro kynnt í kjölfar sameiningar fyrirtækjanna InPro, Liðsinnis og Heilsuverndar. Sameinað undir merkjum InPro hefur fyrirtækið á að skipa færustu sérfræðingum á sínu sviði og hefur það að markmiði að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks. Starfsmenn InPro eru rúmlega 90 talsins: læknar, sjúkraþjálfar, iðjuþjálfar, sjúkraliðar, sjúkraflutningamenn, verkfræðingar, iðnaðarmenn og margir fleiri sérfræðingar.
Mynd












