Fréttir
27.9.2007
Tannskemmdir
Margar ástæður eru án efa fyrir því að okkur hefur ekki tekist að fækka tannskemmdum eins mikið og nágrönnum okkar.
Tannlæknisþjónusta er ókeypis fyrir börn og unglinga til 17 ára aldurs í Finnlandi og Noregi, til 18 ára aldurs í Danmörku og til 20 ára aldurs í Svíþjóð. Eru þessir árgangar barna og unglinga kallaðir inn reglulega til eftirlits og nauðsynlegra meðferða.
Hérlendis þurfa aðstandendur aftur á móti að greiða stóran hluta af kostnaði vegna tannlæknisþjónustu barna og unglinga og er talið að 17% þeirra komi ekki reglulega til eftirlits. Er því hætta á að skemmdirnar verði stærri og alvarlegri fyrir vikið.
Þetta er lítt skiljanlegt því að tekjur manna eru háar hérlendis og færri íbúar um hvern tannlækni, en hjá flestum öðrum þjóðum.
Ríkið greiðir nú kostnað við skoðun og forvarnir 3ja og 12 ára barna og að hluta til fyrir önnur börn. En
Einnig þarf að auka enn meir fræðslu um áhrif matarræðis á munnsjúkdóma og minnka sælgætis og gosdrykkjaneyslu, sem eru sífellt vaxandi vandamál hérlendis.
Mikilvægt er að hafa ekki sælgæti á þeim stöðum þar sem það er mest freistandi fyrir börn og unglinga t.d. við afgreiðslukassa í stórmörkuðum og hjá gjaldkerum í bönkum eins og algengt er nú orðið.
Einnig ber að varast að hafa stöðugt gosflöskur á borðum þar sem skólabörn læra.
Magnús R Gíslason
Höfundur er fyrrverandi yfirtannlæknir
Mynd












