Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

2.10.2007

Grein í Blaðinu 2.10.2007

Er tunglið veður í skýjum, blindfullt og bjart, þá bregst það varla að fjölmiðlar finna hjá sér hvöt að fjalla um lækningar tanna. Er það ánægjulegt að tannlæknar geti stytt fjölmiðlafólki stundirnar og létt þeim skriftirnar. Já, miklir gleðigjafar erum við tannlæknar.

Áhugi blaðamanna?

Blaðamenn hafa mikinn áhuga á gjaldskrá tannlækna. Það er gott og ánægjulegt. Blaðamenn halda því líka til haga að tannlæknar eru í samkeppnisumhverfi. Rétt eins og lögfræðingar, hárskerar og bílaviðgerðarmenn og  blaðaútgefendur. Eini munurinn er sá er að stærsta greiðslustofnun ríkisins, Tryggingastofnun, er með puttana í tannlækningum. Þeir puttar vilja endilega koma í  veg fyrir eðlilega samkeppni . Þeir puttar vilja hafa óeðlileg áhrif á verðmyndun og fagmennsku í tannlækningum. Stofnunin vill ráða hvaða efni eru notuð og hvaða aðferðum er beitt við lækningar.  Afskipti sem byggjast ekki á vísindum og fagmennsku heldur af viðmiðum baunateljaranna. Krónur og aurar eru það sem máli skiptir á þeim bæ. Ekki heilbrigði og vellíðan sjúklinga, sjúklinga sem borga brúsann hvernig sem botninum er hvolft.

Gjaldtaka tannlækna óeðlileg?

Blaðið hefur gert  gjaldtöku tveggja tannlækna við tanntöku að umtalsefni. Blaðið hefur upplýsingar sínar frá Tryggingastofnun og  er fallegt að rétta stofnuninni hjálparhönd í verðlagseftirliti sínu. Blaðið gerir athugasemdir við að gjaldtaka tannlæknanna sé afar misjöfn. Það er þó grundvallarlögmál samkeppninnar að verð og þjónusta séu mismunandi. Og það er frjálst val hvers og eins, til hvaða tannlæknis hann fer.  Það er blanda af heimsku og snobbi að fara til dýrustu tannlækna sem fyrirfinnast, kaupa dýrustu bílana. Það er margítrekað að tannlæknar eigi að vera í samkeppni, beiti ekki verðsamráði og hafi viðmiðunargjaldskrá uppi á stofum sínum. Um það eru allir sammála. Annað er lögbrot.

Hvað greiðir Tryggingastofnun?

En það sem er athyglisvert við þessa umræðu er að Tryggingastofnun greiði aðeins 1335 krónur fyrir að taka tönn á löggiltri tannlæknastofu, með deyfingu! Þrettánhundruðþrjátíuogfimm krónur! Og  enginn gerir athugasemd við það! Það er álíka og það kostar að taka tönn með skítugum naglbít á götum Islamabad!  Hverjum dettur í hug að þessi upphæð, 1335 krónur,  fari nálægt því að  ná yfir laun allra sem koma að töku tannar , öll efni og áhöld, húsaleigu, rafmagn, hita og allt annað sem tilheyrir rekstri lækningastofu á Íslandi?

Að taka tönn á stofu tannlæknis tekur  að minnsta kosti 20-30 mínútur, oft mikið lengur.

Með einhverri sanngirni má telja að einföld tanntaka með deyfingu gæti kostað 5- 6000 krónur. Að meðaltali greiðir Tryggingastofnun því aðeins 25% af sannanlegum  tanntökukostnaði. Munurinn er fjór- til fimmfaldur!! Hvert leiðir þessi verðstýring ríkisstofnunarinnar? Til tannlæknannna  í Afganistan?

Af hverju er það ekki áhugavert? Og veldur það engum áhyggjum?


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «Febrúar 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar