Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

9.11.2007

Tannlæknafélag Íslands 80 ára

Veglegt ársþing og vörusýning
Í tilefni afmælisins er ársþing félagsins sérstaklega metnaðarfullt en þar flytja tólf íslenskir tannlæknar og vísindamenn fyrirlestra um nýjustu rannsóknir og það helsta sem er gerast á sviði tannlækninga. Þar verður m.a. rætt um glerungseyðingu sem faraldur meðal íslenskra unglinga, tannplanta og tannréttingar sem og verðmyndun i tannlækningum.

Tannlæknafélagið hefur ávallt lagt áherslu á að fylgjast með nýjungum í tannlæknisfræðum og lagt sitt af mörkum til að félagar geti viðhaldið og aukið menntun sína. Samhliða ársþinginu sem haldið er í Laugardagshöll er einnig vörusýning þar sem nýjasta tækni og efni verða kynnt. 

 Nú þegar hafa 256 tannlæknar skráð sig á þingið, sem er haldið í dag, föstudaginn 9. nóvember og á morgun, laugardaginn 10. nóvember. Alls eru 287 tannlæknar starfandi á Íslandi, en 330 tannlæknar eru félagar í TFÍ.

Afmælinu verður einnig fagnað með hófi í Súlnasal Hótel Sögu laugardagskvöldið 10. nóvember þar sem tannlæknar sjá sjálfir um skemmtiatriðin.

 Dagskrá ársþingsins má sjá undir:

http://www.islandsmot.is/Forsida/IslandsmotRadstefnurogfundir/910112007ArsthingTannlaeknafelagsins/Fyrirlestrar/

Nánari upplýsingar um Tannlæknafélagið má finna á vefsíðunni: www.tannsi.is


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «September 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar