- framhald
S
amkvæmt frumvarpi að fjárlögum 2008 hækka framlög hins opinbera til tannlækninga aðeins um 43 milljónir króna sem nægir ekki til að vega á móti verðlagshækkunum, hvað þá til að mæta auknum fjölda þeirra sem eiga lögbundinn rétt til styrkveitinga vegna tannlækninga. Síðast en ekki síst er í frumvarpi til fjárlaga, ekkert tillit tekið til þess að nýgerður samningur TFÍ og heilbrigðisráðuneytisins mun kosta 50 - 70 milljónir á samningstímanum.
Stjórn Tannlæknafélagsins hvetur þá, sem bera hag barna og ungmenna, aldraðra og öryrkja og annarra tryggingaþega, fyrir brjósti, að minna stjórnmálamenn á yfirlýsingar og loforð gefin fyrir kosningar s.l. vor.
Stjórn TFÍ átelur að greiðslustofnun almannatrygginga, TR, hafi ekki í fjórtán ár komið í veg fyrir meint tryggingasvik, þrátt fyrir að stofnunin telji að slíkt mál hafi legið ljóst fyrir allan tímann. Stjórn TFÍ telur óþolandi að allan þennan tíma hafi Tryggingastofnun ríkisins haldið því fram að tryggingasvik innan tannlæknatrygginga hafi verið mikil og almenn. Stofnunin hefur þannig á ábyrgðarlausan hátt rýrt traust almennings á tannlæknum og lækningum þeirra án þess að hafa til þess nokkrar forsendur.
Þessar endalausu árásir á tannlækna eru þannig aðeins byggðar á einu máli sem hefur verið fjórtán ár í skúffum stofnunarinnar. Máli sem enn sér ekki fyrir endann á.
Tannlæknafélagið leggur sig fram um að upplýsa almenning um tannlækningar og beitir sér gegn tryggingasvikum og óheiðarlegum vinnubrögðum. Enn fremur kallar TFÍ eftir samvinnu við sjúklinga og hagsmunafélög um að bæta tannheilsu þjóðarinnar, heilsu sem fer ört hrakandi.
Tannlæknafélag Íslands sættir sig ekki við að opinber stofnun sem jafnframt er samningsaðili félagsins taki einhliða að sér „verðlagseftirlit“ með almennri samkeppnis gjaldskrá tannlækna. Tryggingastofnun ríkisins kemur auk þess aðeins að styrkveitingu 20% tannlæknareikninga.
Tannlæknafélag Íslands hefur ákveðið að gera sérhverjum tannlækni kleift að birta gjaldskrá sína á heimasíðu félagsins á einfaldan og aðgengilegan hátt. Félagið vonast til að með þessu verði endir bundinn á deilur og misskilning um verðlagningu og samkeppni innan tannlæknastéttarinnar.