Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

23.11.2007

Tannlæknatal - 1854-2007

Auk æviágripa, ávarpsorða ritnefndar og formála ritstjóra er í ritinu ítarlega og fróðleg ritgerð Lýðs Björnssonar sagnfræðings um tannlækningar á Íslandi frá öndverðu (120 bls.), prýdd fjölda mynda, m.a. af gömlum lækningaáhöldum í vörslu minjasafns Tannlæknafélags Íslands (TFÍ). Þá fylgir skrá yfir stjórnarmenn og heiðursfélaga TFÍ frá upphafi, en á þessu ári eru 80 ár liðin frá stofnun félagsins hinn 30. október 1927. Í lok ritsins er kandídataskrá, þ.e. skrá yfir alla íslenska tannlækna sem lokið hafa kandídatsprófi frá Háskóla Íslands og erlendum háskólum. Á þessu ári eru liðin 60 ár frá því að Háskóli Íslands brautskráði þrjá fyrstu tannlæknana.

Hið nýja tannlæknatal er í senn ítarlegt upplýsingarit um sögu tannlækninga hér á landi og ævi þeirra Íslendinga sem aflað hafa sér hákólamenntunar á þessu sviði læknavísindanna allt frá árinu 1854.

 Tannlæknatal 1854-2007 er fáanlegt á skrifstofu Tannlæknafélags Íslands, Síðumúla 35 í Reykjavík s. 575-0500, netfang: tannsi@tannsi.is
Verð ritsins er kr. 9.900.

Anný Antonsdóttir, framkvæmdastjóri


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «September 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar