Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

4.1.2008

Janúarþing

Föstudagur 25. janúar

Léttar veitingar í upphafi námskeiðs.

Kl. 14.00 – 15.00
Urður Njarðvík, Ph.d Sérfræðingur í klínískri barnasálfræði ADHD börn.

Áskoranir í daglega lífinu og hjá tannlæknum.
Rætt verður um greiningu ADHD, helstu einkenni og meðferðarúrræði.
Sérstaklega verður fjallað um kvíða og mótþróa ADHD barna, en það fer oft saman. Reynt verður að benda á líklegar leiðir til árangurs þegar auka á samvinnu ADHD barns sem og annara barna.

Kl. 15.00 – 16.00
Gísli Einar Árnason sérfræðingur í tannréttingum

"Að byrja tannréttingu snemma", þ.e. að ræða um hvað er hægt að gera á meðan barnatennur eru enn til staðar, hvað er best að gera á því stigi o.s.frv.  Hvað ber að horfa á bæði í skilningi tanna og beina ( m.t.t. vaxtar)

Kl. 16.00 – 17.00
Helgi Hansson, barnatannlæknir

Tannáverkar fullorðinstanna: Greining, bráðahjálp og útfylling sjúrnals.
Þegar tannlæknar standa frammi fyrir alvarlegir tannáverkum í ungum fullorðinstönnum er mikilvægt að bregðast rétt við strax.  Farið verður yfir greiningu helstu alvarlegu tannáverkana, fyrstu hjálp við þeim og síðast en ekki síst hvernig ber að fylla út góðan áverkasjúrnal, bæði á pappír og í Opus. Rétt greining og góður sjúrnal einfaldar alla meðhöndlun og pappírsvinnu sem því miður oft fylgir þessum áverkum í mörg ár.

Móttaka hjá Lúkasi D Karlssyni milli klukkan 17.00 til 19.00 – léttar veitingar í boði

Laugardagur 26. janúar

Kl. 9.00 – boðið verður upp léttar veitingar í morgunsárið.

Kl. 9.30 – 10.30
Teitur Jónsson sérfræðingur í tannréttingum

Greining og meðferð á þrengslum á tannskiptaaldri
Fjallað verður um þrengsli í blandaða tannsettinu og úrræði við því vandamáli, sérstaklega hvort draga eigi tennur og þá hvenær.

Kl. 10.30 – 11.30
Sigurður Rúnar Sæmundsson MBA PhD MPH FDSRCPSG

Jákvæð og árangursrík samskipti við börn
Í fyrirlestrinum verða kynnt grundvallaratriði í barnasálfræði, og hegðunarmótun og hvernig þau nýtast til að eiga jákvæð og skemmtileg samskipti við börn

Kl. 11.30 – 12.30
Gísli Vilhjálmsson sérfræðingur í tannréttingum

 Einfaldar lausnir á erfiðum vandamálum
 1)   Togörvun (osseus distaction) í LeFort I aðgerðum á börnum
       með klofinn góm.
 2)   Notkun proteinfactora (rh-BMP-2) í stað beinfærsluaðgerða.
 3)   Togörvun á stakar beinfastar tennur á framtannasvæði, t.d. eftir
       tannáverka.

Munið að skrá ykkur tímanlega til skrifstofu TFÍ
á netfangið tannsi@tannsi.is eða í síma 575-0500.

Þátttaka verður takmörkuð við 120 manns

 


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «September 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar