Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

23.1.2008

Reyklaus 2008

Leitað er að þeim sem eru tilbúnir að hætta að reykja, eða eru þegar hættir, og búa yfir góðri sögu sem getur verið hvatning fyrir aðra í baráttunni gegn tóbaki. Verðlaunasamkeppnin er hluti af „European Smoke Free Awards 2008“ sem Evrópuráð reyksíma stendur að. Aðalverðlaun fyrir vinningshafann á Íslandi eru ferð til Amsterdam, á evrópsku verðlaunaafhendinguna, ásamt 100.000 krónum í gjaldeyri. Ellefu lönd í Evrópu taka þátt í þessari keppni og mun hvert og eitt land senda sinn fulltrúa til Amsterdam. Af þessum ellefu verður valinn vinningshafi Evrópu (European Quitter of the Year) sem hlýtur í verðlaun ferðaávísun upp á 15.000 evrur. 

Þeir sem eru tilbúnir að hætta að reykja, eða eru þegar hættir, geta skráð sig með rafrænum hætti á www.reyklaus.is til 15. febrúar 2008. Eftir það þurfa þeir að vera reyklausir.
Þann 15. ágúst 2008 velur dómnefnd þær sögur sem geta veitt öðrum innblástur til að hætta að reykja. Dómnefndin velur loks fulltrúa Íslands í Evrópusamkeppnina. 

Að auki er leitað eftir tilnefningum um baráttumann/hóp gegn tóbaki og meðferðaraðila í tóbaksmeðferð

Margir hafa unnið ötult starf í tóbaksvörnum og tóbaksmeðferð sem ekki má vanmeta. Þetta á sinn þátt í að Ísland stendur framarlega í lagasetningu og öðru sem tengist tóbaksvörnum. Fjöldi heilbrigðisstarfsmanna hefur unnið óeigingjarnt starf við tóbaksmeðferð, en það að hjálpa fólki að hætta að reykja er eitt af mikilvægustu hlutverkum heilbrigðisstarfsmanna til að bæta heilsu skjólstæðinga sinna.
Óskað eftir tilnefningum um einstaklinga eða hópa sem hafa með baráttuvilja, framsýni eða hugrekki lagt sitt af mörkum í tóbaksvörnum eða tóbaksmeðferð þeirra sem heyja baráttu við tóbakið.

Þeir sem hljóta viðurkenningu verða tilnefndir fulltrúar Íslands í „European Smokefree Award 2008“.

Leitað er eftir tilnefningum í tveimur flokkum.

Einstaklingur/hópur einstaklinga fyrir baráttu í tóbaksvörnum
Óskað er eftir að tilnefndur sé einstaklingur, t.d. stjórnmálamaður, fyrir sérstakt framlag í þágu tóbaksvarna á Íslandi.

Heilbrigðisstarfsmaður/meðferðaraðili eða hópur starfsmanna fyrir ötult starf við tóbaksmeðferð
Einnig að tilnefndur sé heilbrigðisstarfsmaður, eða hópur starfsmanna, sem hefur unnið sérstaklega að því að aðstoða fólk við að hætta að reykja.

Hægt er að tilnefna með rafrænum hætti á www.reyklaus.is til 5. maí.
Viðurkenningar verða veittar í þessum tveim flokkum á „Degi án tóbaks“ 31. maí 2008.

Til að fá nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við reyksímann í síma 8006030, svarað er í síma milli kl. 17 og 20 virka daga, símsvari þess á milli, eða senda tölvupóst á reyklaus@reyklaus.is . Einnig er hægt að hafa samband við Guðrúnu Árnýju Guðmundsdóttur, verkefnisstjóra reyksímans í síma 4640500 eða Viðar Jensson, verkefnisstjóra tóbaksvarna hjá Lýðheilsustöð í síma 8400912.


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «Febrúar 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar