Fréttir
6.5.2008
Ábyrgð hins opinbera:
Skemmst er frá því að segja að bréfinu hefur ekki verið svarað en talað í fagurgala við fréttamenn um samninga og vilja og svigrúm og áhyggjur. Ekkert er mark á þessu takandi og nú er svo komið að fagstéttir í heilbrigðisþjónustu verða að taka til sinna ráða. Það er það eina sem hreyfir við steindauðu opinberu kerfi heilsutrygginga.
Til hvers opinber afskipti af heilsu?
Opinber afskipti eru ávallt umdeilanleg. Þegar yfirvöld geta svo ekki lengur greint á milli almennrar lýðheilsu og heilsu einstakra hópa í þjóðfélaginu , þá er ástæða til að losa um opinber afskipti. Opinber afskipti af tannlækningum hafa einungis leitt til þess að hinir betur efnuðu hafa nú einir efni á að nýta sér styrki Tryggingastofnunar til tannlækninga . Upp til hópa fólk sem hefur enga þörf fyrir styrki til heilsu eflingar. Hinir sem eru burðardýr kerfisins, njóta einskis, hafa ekki efni á að nýta sér þá aumu styrki sem hið opinbera þó býður. Nú er svo komið, að til að nýta sér styrki Tr til tannlækninga þarf að leggja út rúmlega helming kostnaðar við lækningarnar. Þeir, sem eru í lægri launastigum, hafa ekki bolmagn til að nýta sér slíka styrki. Auk þess eru þeir hópar með verri tannheilsu og bera því enn meiri kostnað. Tannheilsu sem aðeins versnar í núverandi kerfi.
Hvað er til ráða?
Eins og málum er komið og miðað við þær fregnir sem berast úr heimi baunateljanna í ráðuneytunum þá er lítil von til þess að Tryggingastofnun ríkisins sjái að sér í málefnum sjúklinga tannlækna. Framlög til tryggingaþega á formi styrkja hafa minnkað um 60%-70% frá því að samningum var slitið 1997. Kostnaður við tannlækningar minnkar ekkert þó ríkið telji sig spara með því að stuðla að verri tannheilsu. Ráðamönum þykja tannlækningar ómerkilegar. Tennur þegnanna eru bara óþarfar í þeirra augum. Þá þykir þeim ekki mikið til koma að almenn tannheilsa sé í lagi. Efnafólkið og ráðmenn hafa hvort eð er þau laun á jötunni, að það fólk getur hirt þá styrki sem til falla í heilbrigðiskerfinu.
En hver á að gæta bróður míns?
Sigurjón Benediktsson tannlæknir Húsavík
Mynd












