Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

27.1.2009

Grein eftir Kristínu Heimisdóttur sem birtist í MBL 27.01.09

Tannréttingameðferð tekur að meðaltali þrjú ár. Kostnaður er mismunandi eftir umfangi meðferðarinnar, en algengur kostnaður er 600-900 þúsund. Tann- og bitskekkjur erfast mjög gjarnan innan fjölskyldna. Það er því töluverður kostnaður sem leggst á fjölskyldur þegar börn þurfa á tannréttingum að halda, sérstaklega ef um fleiri en einn einstakling er að ræða. Styrkurinn í dag er að mestu óháður alvarleika bit- og tannskekkjunnar og er í langflestum tilfellum einungis 150 þúsund krónur. Enginn styrkur er veittur til forvarna. Þegar um alvarlegri tilfelli er að ræða, t.d. hjá sjúklingum með klofinn góm og skarð í vör, er algengt að TR greiði um 350 þúsund krónur upp í heildarkostnað meðferðar.

Heilbrigðisráðherra hefur státað sig opinberlega af því að hafa ríkisvætt tannréttingar. Staðreyndin í því máli er að tannréttingasérfræðingur var ráðinn í 10% ráðgjafastöðu við Landspítalann. Á Landspítalanum er til tannlæknastóll, en engin önnur tæki eða tól til tannréttinga, enda stóð ekki til að rétta tennur sjúklinga innan spítalans, heldur var einungis um ráðgjöf sérfræðings í teymisvinnu að ræða. Það er deginum ljósara að 10% staða sérfræðings dugar engan veginn til sinna þessum sjúklingum sem þurfa langa, tímafreka og flókna tannréttingameðferð í tengslum við aðra sérhæfða þjónustu. Þetta eiga bæði heilbrigðisráðherra og forráðamenn spítalans að vita, en hamra samt á því að þjónusta við þennan sjúklingahóp hafi verið stórlega bætt. Foreldrar þessara barna hafa hins vegar enn ekki orðið vör við það á nokkurn hátt. Hér er klárlega um blekkingu að ræða og væri viturlegra fyrir ráðherra heilbrigðismála að halda slíku fyrir sig í stað þess að spóka sig á nýju fötum keisarans í viðtali Morgunblaðsins laugardaginn 13. september sl.

Málum er því miður þannig háttað í dag að efnaminni fjölskyldur hafa ekki efni á að senda börn sín í tannréttingameðferð; hvað þá ef mörg börn innan sömu fjölskyldu þurfa á tannréttingu að halda. Oftast fæðast börn með bitskekkjur/tannskekkjur og lítið sem ekkert við þeim að gera. Í langflestum tilvikum er því um meðfæddan galla að ræða og lítið sem foreldrar geta gert til að koma í veg fyrir skaðann. Lækniskostnaður vegna annarra meðfæddra galla hjá börnum og unglingum fæst hins vegar nær alltaf endurgreiddur úr opinberum sjóðum.

Styrkur hins opinbera hefur hlutfallslega lækkað með árunum og ekki er búist við því að hann hækki í bráð. Það er ljóst að foreldrar þeirra barna sem þurfa á tannréttingameðferð að halda munu ekki taka því fagnandi ef skera á niður í þessum málaflokki, þar sem í raun hefur verið skorið skipulega niður síðastliðin 16 ár. Hækkun styrksins er háð ákvörðun Alþingis um fjárveitingu. Það er því pólitísk ákvörðun að verja fé til málaflokksins.

Hér er klárlega um blekkingu að ræða og væri viturlegra fyrir ráðherra heilbrigðismála að halda slíku fyrir sig í stað þess að spóka sig á nýju fötum keisarans...


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «September 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar