Fréttir
17.3.2009
Fjármálaráðuneytið hefur að tillögu Fjármálaeftirlitsins skipað Lífeyrissjóði Tannlæknafélags Íslands umsjónaraðila. Nánari fréttir til félagsmanna um leið og þær berast TFÍ.
Stjórnum og framkvæmdastjórum sjóðanna, sem allir voru í eignastýringu hjá gamla Landsbankanum, hefur verið vikið frá tímabundið og hafa umsjónarmenn á vegum fjármálaráðuneytisins verið skipaðir. Lára V. Júlíusdóttir hrl. er umsjónarmaður Íslenska lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs Eimskipafélagsins. Umsjónarmaður Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands, Eftirlaunasjóðs FÍA og Kjalar lífeyrissjóðs er Viðar Lúðvíksson hrl.
Háar fjárhæðir
Sjóðirnir sem Landsbankinn hafði umsjón með í eignastýringu voru samanlagt um 52 milljarðar. Þar af var Íslenski lífeyrissjóðurinn stærstur með um 25 milljarða. Sjóður FÍA var um 15 milljarðar, Kjölur lífeyrissjóður um 10 milljarðar, Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands um 2,5 milljarðar og Lífeyrissjóður Eimskipafélagsins um 150 milljónir, en sá sjóður sameinaðist Kili að stærstum hluta í nóvember 2007.
Davíð Harðarson, sem gegndi framkvæmdastjórn í sjóðunum fyrir hönd Landsbankans, vildi ekki tjá sig um málið þegar Morgunblaðið náði tali af honum í gær. Hann var ekki búinn að kynna sér um hvað rannsóknin snerist og við hann hafði ekki verið rætt sérstaklega vegna rannsóknar á málinu. Þá sagðist hann ekki hafa vitað af rannsókn FME á málinu.
Skv. heimildum Morgunblaðsins var fjármálaráðuneytið, fyrir hönd stjórnvalda, látið vita af því fyrir nokkrum dögum að rannsókn málsins af hálfu eftirlitsins væri á lokastigi. Var ráðuneytinu gert það ljóst að umsjónarmenn yrði að skipa yfir sjóðina um leið og sérstakur saksóknari hæfi opinbera rannsókn á fjárfestingum sjóðanna.
Ekki liggur fyrir hversu langan tíma rannsókn málsins getur tekið af hálfu saksóknara. Öllum gögnum er varða málin og skoðun FME á þeim hefur verið komið til saksóknara.
Daglegur rekstur sjóðanna helst óbreyttur og mun hagsmuna sjóðsfélaga verða gætt í hvívetna, að því er fram kemur í tilkynningu sem fjármálaráðuneytið sendi frá sér í gær vegna málsins. Á næstu dögum verður sjóðsfélögum sent bréf með frekari upplýsingum um stöðu mála.
Mynd












