Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

2.4.2009

Hjálparvakt tannlækna fyrir börn og unglinga

Fjárhagslegar aðstæður margra heimila hafa breyst verulega til hins verra

á síðustu mánuðum. Því miður sýnir reynslan að eitt af því sem foreldrar

neyðast til að spara þegar þrengir að eru tannviðgerðir og eftirlit hjá

börnum og unglingum. Dregið hefur stórlega úr þáttöku íslenskra

stórnvalda í kostnaði vegna tannheilsu barna og við blasir gífurleg hætta

á tannskemmdum og jafnvel vanlíðan barna og unglinga um þessar

mundir. Í sumum tilfellum bíður fólk þess aldrei bætur.

Tannlæknar hafa ákveðið að koma til móts við þau heimili sem erfiðast

eiga uppdráttar með sjálfboðavinnu við skoðun og viðgerðir tanna hjá

börnum og unglingum. Skorað er á barnafjölskyldur sem búa við kröpp

kjör að nýta sér þetta tækifæri til ókeypis tannlæknaþjónustu fyrir börn

og unglinga 18 ára og yngri.

Hjálparvakt tannlækna er samstarfsverkefni Tannlæknafélags Íslands

og Tannlæknadeildar Háskóla Íslands. Þjónustan er veitt í húsnæði

Tannlæknadeildar Háskóla Íslands, Tanngarði, laugardagana 4. apríl,

18. apríl, 9. maí og 23. maí frá kl. 10.00 – 13.00.

Ekki er tekið við tímapöntunum en ráðstafanir eru gerðar til þess

að biðtími verði ávallt hóflegur. Nánari upplýsingar eru veittar hjá

Tannlæknadeild Háskóla Íslands í síma 525 4850


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «September 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar