Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

19.5.2009

Tannheilsa íslenskra barna - Erum við að tala um sama hlutinn?

Sannanlega er mikil þörf á Grettistaki í tannforvarnamálum á Íslandi. Á tannlæknastofum þarf að auka forvarnavinnu sem beinist að áhættueinstaklingum, og auka þarf almennt tannheilsuvitund þjóðarinnar. Það gerist markvisst í gegn um fjölmiðla, skólakerfi og heilsugæslu með til dæmis fleiri stöðugildum fyrir tannfræðinga eins og reynst hefur vel á hinum Norðurlöndunum. Beinist sú vinna annars vegar að öllum börnum (skólinn) og hins vegar að áhættuhópum (heilsugæslan). Þetta er langtímaverkefni sem getur skilað fyrst heilsufarslegum, og síðar fjárhagslegum ávinningi. Það mun hins vegar ekki hjálpa þeim börnum sem þurfa núna Panodil við tannverk til þess að sofna á kvöldin.

Eins og bent hefur verið á er þrátt fyrir allt tannheilsa stærsta hluta Íslenskra barna í ágætis lagi, en við verðum að viðurkenna að það eru stór göt í tölunum sem við notum til þess að bera okkur saman við nágrannaþjóðirnar varðandi þróunina undanfarin ár og áratugi. Það sést best þegar farið er að reyna að nota reikninga sem skila sér inn til endurgreiðslu hjá Sjúkratryggingum til þess að kortleggja ástandið. Reikningarnir segja ekkert um þann hóp sem ekki mætir og þeir segja lítið um tannheilsu þess hóps sem mætir. Ekki stendur á reikningunum um skemmdirnar sem ekki var gert við af ýmsum ástæðum, og ekki vitum við hvað margir reikningar liggja í skúffum á heimilum landsmanna og skila sér ekki til Sjúkratrygginga vegna þess hve endurgreiðslan er lítil. Mín tilfinning eftir að hafa verið 16 ár tannlæknir á Íslandi og í Noregi er að tannheilsa Íslendinga hafi alltaf verið nokkrum skrefum á eftir nágrannþjóðunum undanfarin ár og áratugi. Við vorum á tímabili að nota tölur sem ekki voru samanburðarhæfar og fegruðu ástandið.

Því stendur íslenska þjóðin með núverandi heilbrigðisráðherra frammi fyrir tveimur stórum tannheilsuvandamálum barna og ungmenna. Í fyrsta lagi þarf að lækka tannskemmdatíðni hér almennt. Það gerist með forvörnum, bæði einstaklings- og hópmiðuðum. Þetta er langtímaverkefni en ekki átak, því alltaf þarf að mennta og fræða nýjar kynslóðir. Hins vegar þarf að bregðast við bráðavanda hópsins sem ekki telur sig geta klofið þann kostnað sem fylgir tannlæknaþjónustu með hinni takmörkuðu endurgreiðslu hins opinbera. Einungis markvissar aðgerðir til þess að ná beint til þessara foreldra sem og að minnka fjárhagslegan kostnað foreldranna með aukinni endurgreiðslu kostnaðar, hjálpar til.

Það ætti að vera rannsóknarefni hvað »heilbrigðisráðherrum góðærisins« gekk til, að rústa þessu kerfi svo kirfilega að það kostar líklega margfalt meira að endurreisa það til þess að við getum horft kinnroðalaust framan í heilbrigðisyfirvöld hjá sambærilegum þjóðum. Skammtímasjónarmið hafa greinilega ráðið þar ríkjum og heilbrigðisráðherrar án framsýnar geta greinilega verið hættulegir heilsunni. Heilsugæsla og heilbrigði barna er einn af mælikvörðunum á velferðarþjóðfélag. Í tannheilsu barna fáum við klárlega falleinkunn.

Oft eru þau rök notuð þegar tannheilsa er borin saman við aðra heilbrigðisþjónustu að þetta sé skapaður vandi einstaklingsins og á eigin ábyrgð. Það er upp að vissu marki rétt, en börn (og ýmsir aðrir hópar) bera ekki ábyrgð á sjálfum sér og það er oft átakanlegt sem barnatannlæknir að sjá hvað framtaksleysi sumra foreldra þarf að kosta börn mikla þjáningu og skert lífsgæði. Þarna þarf samfélagið að taka við ábyrgðinni að hluta, eins og á mörgum öðrum sviðum og veita það skjól sem börnin þurfa.

Núverandi heilbrigðisráðherra hefur lýst yfir vilja til þess að beina málum í réttan farveg og hef ég fulla trú á að honum takist það með góðra manna hjálp, ef hann fær til þess tíma og fjármuni. Oft áður hafa þó loforð stjórnmálamanna yfirgnæft efndirnar í þessum málaflokki. Mín ráðlegging til hans er þó að hann þurfi bæði að skapa sér yfirsýn yfir málaflokkinn og halda þessum tveimur vandamálum aðskildum, því lausnirnar eru all-ólíkar og hafa takmarkaða snertifleti.

Bráðavandamálið verður aðeins leyst í samvinnu hins opinbera og tannlækna og verða allir að girða sig í brók og leggjast á eitt. Börn þessa lands eiga það inni hjá okkur og gott verður fyrir okkur að innkalla greiðann þegar við seinna þurfum að leggjast inn á öldrunarstofnanir með okkar viðgerðu tennur. Þar er annað átaksverkefni sem bíður úrlausnar.


>> Hópur þeirra foreldra sem ekki telja sér fært að kljúfa þann kostnað sem fylgir tannlæknakostnaði barna, hefur stækkað ört undanfarin ár.


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «September 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar