Neyðarvakt TFÍ
Þetta er neyðarvakt Tannlæknafélags á höfuðborgarsvæðinu
Laugardaginn 4. febrúar og sunnudaginn 5. febrúar verður opiðá milli klukkan 11.00 og 13.00 á tannlæknastofu Ásu Margrétar Eiríksdóttur Háaleitisbraut 1 (Valhöll) Reykjavík. Síminn þar er 568-2522.
Mánudaginn 6. febrúar til föstudagins 10. febrúar verður Ása Margrét á bakvakt
eingöngu þegar um neyðartilfelli er að ræða, í sama símanúmeri.
Athugið að á vegum Tannlæknafélags Íslands er ekki rekin neyðarvakt um kvöld og nætur og er sjúklingum bent á að snúa sér til slysadeildar sjúkrahúsanna þegar um alvarleg slys er að ræða.
Neyðarlínan, sími 112 - Einn Einn Tveir
Þegar slys eða óhapp ber að höndum, hringir þú í Neyðarlínuna í síma 112. Skýrðu á glöggan hátt frá aðstæðum, segðu hvar þú ert og hvers konar hjálpar er óskað. Haltu stillingu þinni og hlustaðu eftir ráðleggingum viðmælanda, sem þegar í stað gerir viðeigandi ráðstafanir þér til hjálpar.
Til notenda gsm-síma
Hafið hugfast að hægt er að hringja í Neyðarlínuna, jafnvel þótt ekkert símakort sé í símanum.
Landspítali háskólasjúkrahús - við Hringbraut og í Fossvogi
Aðalsímanúmer: 543 1000 svarar allan sólarhringinn· Beint innval á bráðamóttöku Landspítala við Hringbraut: 543 2050 · Beinn innval á Slysadeild Landspítala í Fossvogi: 543 2000
Almennar upplýsingar
Til þess að íþróttaslys teljist bótaskylt hjá Slysatryggingadeild TR þarf íþróttamaður Tryggingastofnunar ríkisins vegna íþróttameiðsla voru áður tilkomnar vegna undanþáguheimildar frá árinu 1993. Til þess að íþróttaslys teljist bótaskylt hjá Slysatryggingadeild TR þarf íþróttamaður að sýna fram á a.m.k. tíu daga óvinnufærni af völdum slyssins.
>>> Nánar
Mynd












