Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Anna Daníelsdóttir

Guðríður Anna Daníelsdóttirf. 4. des. 1957 á Akranesi.

Faðir: Daníel Guðnason, háls-, nef- og eyrnalæknir í Reykjavík, f. 4. apríl 1929. For.: Guðni Hjörleifsson, héraðslæknir í Vík í Mýrdal, V-Skaft., f. 24. júlí 1894, d. 23. júní 1936, og k.h. Þórhildur Margrét Þórðardóttir, húsfreyja, síðar í Reykjavík, f. 6. maí 1899, d. 11. nóv. 1989.

Móðir: Gerður Birna Guðmundsdóttir, snyrtifræðingur í Reykjavík, f. 2. apríl 1938. For.: Guðmundur Björnsson, kennari á Akranesi, f. 24. mars 1902, d. 17. nóv. 1989, og k.h. Pálína Þorsteinsdóttir, húsfreyja, síðar í Reykjavík, f. 28. jan. 1908, d. 13. okt. 1999.

Nám: Stúdent frá M.T. 1977. B.Sc. í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands 1984. Cand. odont. frá Gautaborgarháskóla 7. júní 1991. — Tannlækningaleyfi í Svíþjóð 16. nóv. 1992 og á Íslandi 28. júlí 1994.

Störf: Hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum frá jan. 1984 til júní 1985 og á Umebygdens Sjukhem í Umeå í Svíþjóð frá ágúst 1985 til jan. 1986 og júní–sept. 1986. AT-tannlæknir í Älvängen í Svíþjóð (kandídatsár) frá ágúst 1991 til nóv. 1992. Tannlæknir í Lilla Edet í Svíþjóð frá nóv. 1992 til maí 1996 og í Lerum í Svíþjóð frá mars 1996 til maí 1997. Aðstoðartannlæknir í Reykjavík frá júní 1997 til 1999. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá 2000.

Maki: 24. des. 1980, Sigurður Kristjánsson, f. 23. febr. 1955, stúdent frá M.R. 1975, cand. med. frá H.Í. 1982, dr. med. frá Gautaborgarháskóla 1995, barnalæknir. For.: Kristján Stefán Sigurðsson, yfirlæknir í Keflavík og Reykjavík, f. 14. nóv. 1924, d. 9. nóv. 1997, og k.h. Valgerður Guðrún Halldórsdóttir, húsfreyja, f. 20. apríl 1929, d. 25. apríl 2000.

Börn þeirra: 1) Valgerður Rós, f. 31. júlí 1981. 2) Daníel Freyr, f. 27. apríl 1987. 3) Kristján Jökull, f. 27. apríl 1987.

Skyldleiki/tengdir: Jenný Ágústsdóttir (svilkona), Pálmi Þór Stefánsson og Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson (þremenningar).



Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar