Hallur Halldórsson f. 26. des. 1963 í Reykjavík.
Faðir: Halldór Skaftason, veitingastjóri í Reykjavík, f. 26. febr. 1942. For.: Skafti Sæmundur Stefánsson, framreiðslumaður í Reykjavík, f. 25. mars 1921, d. 3. júní 1946, og k.h. Sigurveig Halldórsdóttir, húsfreyja, f. 11. maí 1922.
Móðir: Þorgerður Ína Gissurardóttir, deildarstjóri og húsfreyja í Reykjavík, f. 10. júlí 1943. For.: Gissur Kristjánsson, bóndi og fisksali í Sogahlíð í Reykjavík, f. 5. des. 1904, d. 13. okt. 1993, og k.h. Guðrún Jónsdóttir, kennari, f. 1. júní 1907, d. 27. jan. 1982.
Nám: Stúdent frá V.Í. 1983. Cand. odont. frá H.Í. 1990. Tannlækningaleyfi 9. des. 1991.
Störf: Sjómaður hjá Hf. Eimskipafélagi Íslands á sumrin 1979-81. Sölumaður hjá Sindrastáli á sumrin 1983-88. Aðstoðartannlæknir hjá Páli Jónssyni á Selfossi júní-sept. 1990. Hefur rekið eigin tannlækningastofu á Selfossi, Djúpavogi og Breiðdalsvík frá sept. 1990, og einnig rekið tannlækningastofu með Petru Sigurðardóttur á Hellu á Rangárvöllum frá jan. 1993.
Félags- og trúnaðarstörf: Ristjóri Harðjaxls 1985-86. Formaður stjórnar Félags íslenskra tannlæknanema 1987-88, ritari 1988-89.
Maki: 17. júní 1986, Maria Christie Pálsdóttir, f. 28. maí 1964, sölumaður hjá Farmacia hf. Þau skildu 30. maí 1989, lögsk. 13. júní 1990. For.: Páll Heiðar Jónsson, dagskrárgerðarmaður í Reykjavík, f. 16. febr. 1934, og seinni k.h. (skildu) Maria Teresa Jónsson, f. Consalves da Silva, skurðstofuhjúkrunarfræðingur, f. 20. ágúst 1936.
Sonur þeirra: Halldór Heiðar, f. 11. nóv. 1986.
Sambýliskona: 1991, Petra Sigurðardóttir, f. 3. jan. 1967, stúdent frá M.H. 1986, cand. odont. frá Karolinska Institutet 1992, tannlæknir á Hellu. For.: Sigurður Líndal Viggósson, tannlæknir í Reykjavík, f. 19. okt. 1941, og k.h. Esther Pétursdóttir, þroskaþjálfi, f. 20. apríl 1943.
Börn þeirra: 1) Andri Hrafn, f. 15. mars 1991. 2) Esther, f. 29. nóv. 1995.
Skyldleiki/tengdir: Petra Sigurðardóttir (sambýliskona), Sigurður L. Viggósson (faðir sambýliskonu).
|