Hartmann Ásgrímsson
Hartmann Ásgrímsson f. 7. ágúst 1955 á Ólafsfirði. Faðir: Ásgrímur Hartmannsson, kaupmaður, bæjarstjóri og framkvæmdastjóri á Ólafsfirði, f. 13. júlí 1911. For.: Hartmann Ásgrímsson, kaupmaður í Kolkuósi, bóndi, oddviti og hreppstjóri í Langhúsum (Ásgarði) í Viðvíkurhr., Skag., f. 8. sept. 1874, d. 8. ágúst 1948, og k.h. Kristín Símonardóttir, húsfreyja, f. 15. okt. 1866, d. 21. apríl 1956. Móðir: Helga Jónína Sigurðardóttir, húsfreyja á Ólafsfirði, f. 22. mars 1917. For.: Sigurður Kristinn Jónsson, sjómaður, verkamaður og afgreiðslumaður á Ólafsfirði, f. 16. nóv. 1891, d. 23. júlí 1963, og k.h. Sigríður Jóna Vilhjálmsdóttir, húsfreyja, f. 19. nóv. 1891, d. 11. nóv. 1965. Nám: Stúdent frá M.A. 1977. Cand. odont. frá H.Í. 1986. Tannlækningaleyfi 4. des. 1986. Starf: Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Vestmannaeyjum frá des. 1986. Sambýliskona: 1979, Edda Björk Hauksdóttir, f. 21. júní 1956, stúdent frá M.H. 1980, húsfreyja. For.: Haukur Sveinsson, bifreiðarstjóri í Reykjavík, f. 28. sept. 1917, og k.h. Hólmfríður Sölvadóttir, húsfreyja, f. 21. sept. 1917. Börn þeirra: 1) Ásgrímur, f. 5. febr. 1980. 2) Illugi, f. 3. des. 1981. 3) Kristín, f. 10. nóv. 1983. 4) Guðlaug, f. 13. júní 1985. 5) Þórgunnur, f. 22. okt. 1988. 6) Hólmfríður, f. 29. júní 1990. 7) Helga Sigríður, f. 12. maí 1992. 8) Björn Virgill, f. 9. des. 1994.
|
Mynd








