Heimir Hallgrímsson
Heimir Hallgrímsson f. 10. júní 1967 í Vestmannaeyjum. Faðir: Hallgrímur Þórðarson, netagerðarmeistari í Vestmannaeyjum, f. 7. febr. 1926. For.: Þórður Halldór Gíslason, netagerðarmeistari í Vestmannaeyjum, f. 20. júní 1898, d. 17. mars 1993, og k.h. Jónína Guðjónsdóttir, húsfreyja, f. 25. febr. 1903, d. 15. apríl 1995. Móðir: Guðbjörg Einarsdóttir, húsfreyja í Vestmannaeyjum, f. 30. sept. 1931. For.: Einar Vilhjálmsson, trésmiður í Vestmannaeyjum, f. 9. febr. 1886, d. 29. sept. 1974, og k.h. Halldóra Sigrún Sigurðardóttir, húsfreyja og verkakona, f. 4. maí 1901, d. 18. júlí 1994. Nám: Stúdent frá Fr.Vest. 1987. Cand. odont. frá H.Í. 1994. Tannlækningaleyfi 30. ágúst 1994. Starf: Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Vestmannaeyjum frá júní 1994. Sambýliskona: 1991, Íris Sæmundsdóttir, f. 11. okt. 1974, stúdent frá Fr.Vest. 1994. For.: Sæmundur Sæmundsson, bifreiðarstjóri í Reykjavík, f. 17. apríl 1950, og Helga Björk Tómasdóttir, verkakona í Vestmannaeyjum, f. 30. mars 1944. Sonur þeirra: Hallgrímur, f. 21. mars 1996. Skyldleiki/tengdir: Hreinn Aðalsteinsson (maki II tvím. við móður H.H.). |
Mynd








