Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Áslaug Óskarsdóttir

Áslaug Óskarsdóttir f. 22. des. 1965 í Reykjavík.

Faðir: Óskar Hafsteinn Karlsson, framkvæmdastjóri í Garðabæ, f. 15. febr. 1935. For.: Guðmundur Þórarinn Guðjónsson, glerskurðarmeistari og kaupmaður í Keflavík, f. 15. jan. 1913, d. 1. júlí 1975, og Halldóra Þorsteinsdóttir Líndal, húsfreyja í Borgarnesi, Keflavík og Garðabæ, f. 20. nóv. 1915, d. 1. febr. 1989. Kjörfaðir (Óskars): Karl Guðmundsson, kjötmatsmaður í Borgarnesi og síðar verkstjóri í Reykjavík, f. 2. júlí 1907, d. 11. sept. 1993. (Halldóra var fyrri k. Karls.)


Móðir: Lovísa Einarsdóttir, íþróttakennari, sjúkraliði í Garðabæ, f. 18. ágúst 1943. (Óskar og Lovísa skildu). For.: Einar Jóhannsson, skipstjóri á Ísafirði, f. 27. mars 1921, d. 10. júlí 1984, og Áslaug Einarsdóttir, verkakona í Reykjavík, f. 3. febr. 1920, d. 16. mars 1982.


Nám: Stúdent frá F.G. 1984. Nám í tannlæknisfræði við Universität Düsseldorf í Þýskalandi 1985-86 og H.Í. 1988-94, cand. odont. þaðan 1994. Tannlækningaleyfi 9. nóv. 1994.


Störf: Fimleikaþjálfun hjá Gerplu, Stjörnunni og Gróttu 1980-85 og 1993-94. Vann á lager hjá versluninni Vogue í Reykjavík 1984-85. Starfaði á tannlækningastofu Björns Þorvaldssonar í Reykjavík júní-sept. 1993 og frá júní 1994 til febr. 1995. Hefur rekið tannlækningastofu í Garðabæ ásamt Guðrúnu Jónsdóttur frá 1. mars 1995. - Leiðbeinandi á íþrótta- og leikjanámskeiðum í nokkur sumur. Alþjóðlegur dómari í fimleikum 1981-97.


Félags- og trúnaðarstörf: Í tækninefnd kvenna í fimleikum 1984-94. Formaður skemmtinefndar og í stjórn Félags íslenskra tannlæknanema 1990. Formaður félagsheimilisnefndar TFÍ 1995-96. Í stjórn Félags ungra tannlækna frá 1996.


Íþróttir: Fimleikamaður ársins 1980, bikarmeistari í fimleikum 1979, 1980 og 1981 og unglingameistari 1977-79.


Viðurkenning: Var veitt viðurkenning Fimleikasambands Íslands 1986 fyrir vel unnin störf.


Sambýlismaður: 1996, Ingólfur Einarsson, f. 28. okt. 1968, stúdent frá M.H. 1988, cand. med. frá H.Í. 1994, læknir. For.: Einar Einarsson, múrarameistari í Reykjavík, f. 5. des. 1942, og k.h. Alda Ingólfsdóttir, húsfreyja, f. 1. maí 1939.


Sonur þeirra: Óskírður, f. 3. sept. 1997.




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar