Hilmir Valsson
Hilmir Valsson f. 20. apríl 1968 á Akureyri. Faðir: Valur Baldvinsson, rafvirkjameistari á Akureyri, f. 9. jan. 1941. For.: Baldvin Leifur Ásgeirsson, húsasmiður og forstjóri á Akureyri, f. 23. sept. 1917, og k.h. Hekla Ásgrímsdóttir, húsfreyja, f. 25. mars 1919. Móðir: Sigrún Bernharðsdóttir, leikskólakennari á Akureyri, f. 2. maí 1946. For.: Bernharð Pálsson, bifreiðarstjóri á Laugaborg í Hrafnagilshr., Eyjaf., f. 27. ágúst 1903, d. 29. des. 1969, og k.h. Guðrún Jónína Sveinbjörnsdóttir, húsfreyja, síðar húsvörður á Akureyri, f. 23. júlí 1919. Nám: Stúdent frá M.A. 1988. Cand. odont. frá H.Í. 1994. Tannlækningaleyfi 16. nóv. 1994. Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Jóhanni S. Jónssyni í ágúst 1994. Tannlæknir í Borgarnesi frá nóv. 1994. Sambýliskona: 1988, Sólveig Dóra Magnúsdóttir, f. 17. jan. 1967, stúdent frá M.A. 1987, cand. med. frá H.Í. 1994, læknir í Reykjavík. Þau slitu sambúð 1991. For.: Magnús Aríus Ottósson, vélvirki á Akureyri, f. 11. nóv. 1944, og k.h. Margrét Valborg Jónsdóttir, iðnverkakona, f. 28. apríl 1943. Sonur þeirra: Hugi, f. 4. okt. 1988. Barnsmóðir: Guðný Sigríður Víkingsdóttir, f. 7. okt. 1963, stúdent frá M.A. 1984, kennari á Akureyri. For.: Jón Víkingur Guðmundsson, bóndi á Grundarhóli á Hólsfjöllum, N-Þing., síðar bóndi og vörubifreiðarstjóri á Grænhóli við Akureyri, f. 29. maí 1924, og k.h. Bergþóra Sigríður Sölvadóttir, húsfreyja, f. 28. sept. 1932. Dóttir þeirra: Selma, f. 1. júlí 1992. Sambýliskona: Júlí 1995, Gunnhildur Inga Magnúsdóttir, f. 4. júlí 1970, húsfreyja. For.: Magnús Guðjónsson, rafvélavirki í Borgarnesi, f. 5. nóv. 1945, og Berghildur Reynisdóttir, formaður Verkalýðsfélags Borgarness, f. 19. mars 1950. Dóttir þeirra: 1) Hrund, f. 18. apríl 1997. Fóstursonur Hilmis (sonur Gunnhildar f. sambúð): 2) Sigurjón Sindri Skjaldarson, f. 10. okt. 1990. |
Mynd








