Ásta Björt Thoroddsen
Ásta Björt Thoroddsen f. 17. maí 1942 í Reykjavík. Móðir: Hrafnhildur Gríma Guðmundsdóttir Thoroddsen, meinatæknir hjá Rannsóknastofu Háskóla Íslands, f. 27. febr. 1923. For.: Guðmundur Skúlason Thoroddsen, yfirlæknir og prófessor í Reykjavík, f. 1. febr. 1887, d. 6. júlí 1968, og fyrri k.h. Regína Magdalena Benediktsdóttir Thoroddsen, húsfreyja, f. 23. júní 1887, d. 28. apríl 1929. Kjörfaðir: Guðmundur Skúlason Thoroddsen, yfirlæknir á handlæknis- og fæðingardeild Landspítalans og prófessor við Háskóla Íslands, f. 1. febr. 1887, d. 6. júlí 1968. For.: Skúli Jónsson Thoroddsen, sýslumaður, bæjarfógeti, ritstjóri og alþingismaður á Ísafirði, síðar bóndi, alþingismaður og ritstjóri á Bessastöðum á Álftanesi, Gullbr., og síðast í Reykjavík, f. 6. jan. 1859, d. 21. maí 1916, og k.h. Theodóra Friðrika Guðmundsdóttir Thoroddsen, húsfreyja og skáldkona, f. 1. júlí 1863, d. 23. febr. 1954. Kjörmóðir: Siglín Guðmundsdóttir Thoroddsen, húsfreyja í Reykjavík, f. 17. júní 1901, d. 23. maí 1966. (Siglín var seinni k. Guðmundar.) For.: Guðmundur Guðmundsson, bóndi á Ketilsstöðum, Vatnsskarðshólum, Litla-Hvammi og Brekkum í Dyrhólahr., V-Skaft., f. 18. ágúst 1867, d. 10. mars 1964, og k.h. Rannveig Guðmundsdóttir, húsfreyja, f. 2. okt. 1872, d. 21. júní 1956. Nám: Stúdent frá M.R. 1962. Cand. odont. frá H.Í. 1968. Tannlækningaleyfi 30. sept. 1968. Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Ríkarði Pálssyni í Reykjavík frá vori 1968 til sept. 1968 og hjá Magnúsi R. Gíslasyni í Reykjavík frá 19. maí 1969 til 10. mars 1978. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá 13. mars 1978. Félags- og trúnaðarstörf: Í varastjórn Kvenréttindafélags Íslands (KRFÍ) 1970-72. Stofnfélagi í Soroptimistaklúbbi Reykjavíkur III frá 18. okt. 1980, formaður 1982-84, ritari og meðstjórnandi frá 1984. Í fjárhagsnefnd Landssambands soroptimista 1991-93 og verkefnisstjóri heilbrigðismála sambandsins frá 1994 til 1. okt. 1997. Maki I: 7. des. 1963, Auðunn Klemenz Sveinbjörnsson, f. 12. apríl 1941, stúdent frá M.A. 1961, cand. med. frá H.Í. 1968, svæfingalæknir. Þau skildu 28. ágúst 1970, lögsk. 14. jan. 1972. For. Sveinbjörn Klemenzson, vélsmiður á Sólbarði í Bessastaðahr., Gullbr., f. 1. okt. 1913, d. 14. sept. 1978, og k.h. Margrét Sveinsdóttir, húsfreyja, f. 25. apríl 1918. Synir þeirra: 1) Guðmundur, f. 28. okt. 1963, M.A. í stjórnmálahagfræði frá Johns Hopkins University, búsettur í Singapúr. Maki: Elisabeth Goldstein, f. 1. júlí 1967, M.A. í stjórnmálhagfræði. 2) Sveinbjörn, f. 21. apríl 1967, cand. med. frá H.Í., læknir í Reykjavík. Sambýliskona: Guðrún Elísabet Árnadóttir, f. 8. jan. 1968, B.A. í stjórnmálafræði, stud. jur. við H.Í. Maki II: 1. febr. 1974, Eyjólfur Sveinn Sigurgeir Gunnarsson, f. 29. júní 1948, framkvæmdastjóri. Þau skildu 14. des. 1990, lögsk. 2. mars 1993. For. Gunnar Árni Sveinsson verkamaður í Hafnarfirði, f. 14. apríl 1919, og k.h. (skildu) Guðrún Eyjólfsdóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 13. nóv. 1920. Börn þeirra: 1) Eyjólfur Bjartur, f. 2. nóv. 1975, nemi. 2) Guðrún Lína, f. 14. des. 1982, nemi. Skyldleiki/tengdir: Ellen Benediktsson (maki ömmubróður), Helgi Indriðason (þremenningur), Jón Benediktsson (ömmubróðir), Ólöf Regína Torfadóttir, Skúli Torfason og Þorvaldur Torfason (tvím. við móður). |
Mynd








