Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Ingjaldur Bogason

Ingjaldur Hafsteinn Bogason f. 18. sept. 1940 í Reykjavík.


Faðir: Bogi Ingjaldsson, vélstjóri í Reykjavík, f. 17. júní 1904, d. 25. jan. 1977. For.: Ingjaldur Kristján Bogason, sjómaður og bátasmiður á Hellissandi, f. 26. júní 1877, d. 1. nóv. 1916, og k.h. Petrína Margrét Lárusdóttir, húsfreyja, f. 8. ágúst 1878, d. 18. okt. 1968.


Móðir: Steinunn Guðbrandsdóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 11. des. 1908, d. 31. mars 1973. For.: Guðbrandur Þorsteinsson, vitavörður og bóndi á Loftsölum í Mýrdal, Dyrhólahr., V-Skaft., f. 5. des. 1869, d. 25. júlí 1951, og k.h. Elín Björnsdóttir, húsfreyja, f. 31. okt. 1872, d. 28. okt. 1946.


Nám: Stúdent frá V.Í. 1961. Cand. odont. frá H.Í. 1967. Tannlækningaleyfi 25. okt. 1967.


Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Geir R. Tómassyni í Reykjavík júní-okt. 1967. Tók við rekstri tannlækningastofu Gríms Björnssonar á Akranesi í nóv. 1967, keypti þá stofu og rak hana frá nóv. 1969 til apríl 1976. Stofnaði þá ásamt Lárusi Arnari Péturssyni Tannlækningastofuna sf. á Akranesi og hefur starfað þar síðan.


Maki: 17. sept. 1966, Ingibjörg Jóna Jónsdóttir, f. 21. mars 1944, stúdent frá V.Í. 1965, kennarapróf frá K.Í. 1966, sérkennarapróf frá K.H.Í. 1984, sérkennari. For.: Jón Magnús Þorvaldsson, skipstjóri í Reykjavík, f. 24. apríl 1900, d. 30. jan. 1965, og k.h. Ingibjörg Þórðardóttir, húsfreyja, f. 22. apríl 1903, d. 26. maí 1977.


Börn þeirra: 1) Jón Þorvaldur, f. 28. mars 1967, B.A. í sálarfræði frá H.Í., í framhaldsnámi í Björgvin í Noregi. Sambýliskona: Guðríður Björnsdóttir, f. 19. ágúst 1965, leikskólastarfsmaður. 2) Ingibjörg Steinunn, f. 20. apríl 1968, rekstrarfræðingur í Bessastaðahr., Gullbr. Maki: Guðmundur Ragnar Guðmundsson, f. 18. ágúst 1967, rekstrarfræðingur og framkvæmdastjóri. 3) Sólborg Þóra, f. 17. mars 1971, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík. Maki: Einar Geir Hreinsson, f. 11. des. 1963, trésmiður og lyfjafræðingur.


Skyldleiki/tengdir: Sigurjón Benediktsson (tvímenningur).


 




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar