Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Jóhann S. Jónsson

Jóhann Sverrir Jónsson f. 14. mars 1934 á Siglufirði.

Faðir: Jón Tryggvi Jóhannsson, skipstjóri og verkstjóri á Siglufirði, f. 27. júní 1906, d. 11. des. 1962. For.: Jóhann Kristján Sveinbjörnsson, útvegsbóndi í Brekku og á Sauðanesi í Svarfaðardalshr., Eyjaf., útgerðarmaður á Dalvík, sjómaður í Reykjavík og tollgæslumaður á Siglufirði, síðast í Reykjavík, f. 9. jan. 1884, d. 8. mars 1968, og k.h. Sesselja Jónsdóttir, húsfreyja, f. 13. okt. 1883, d. 30. maí 1932.

Móðir: Elín Flóventsdóttir, húsfreyja á Siglufirði, f. 17. júní 1903, d. 30. sept. 1980. For.: Flóvent Ágúst Stæhr Jensson, verkamaður og sjómaður á Akureyri, síðast á Siglufirði, f. 8. ágúst 1862, d. 18. júlí 1941, og k.h. Jakobína Björg Þorleifsdóttir, húsfreyja og verkakona, f. 5. des. 1864, d. 9. júní 1953.

Nám: Stúdent frá M.A. 1955. Cand. odont. frá Universität München í Þýskalandi 1961. Tannlækningaleyfi 14. sept. 1961.

Starf: Tannlæknir á Siglufirði frá sept. 1961 til ársloka 1995, er hann lét af störfum.

Félags- og trúnaðarstörf: Í stjórn Íþróttabandalags Siglufjarðar 1966-72. Í heilbrigðisnefnd Siglufjarðar 1968-83. Gjaldkeri í stjórn Tannlæknafélags Norðurlands 1976-78. Í stjórn Stangaveiðifélags Siglufjarðar frá 1977. Forseti Kiwanisklúbbsins Skjaldar 1977-78. Svæðisstjóri Grettissvæðis Kiwanis á Norðurlandi vestra 1990-91.

Maki: 5. sept. 1958, Anna Jóhanna Jóhannsdóttir, f. Hauk, f. 18. nóv. 1934, kjólasaumameistari og húsfreyja. For.: Johann Hauk, járnbrautarstarfsmaður í München í Þýskalandi, f. 6. des. 1894, d. 7. apríl 1974, og k.h. Sophie Hauk, f. Axmann, húsfreyja, f. 20. jan. 1902, d. 20. nóv. 1956.

Börn þeirra: 1) Bylgja, f. 28. des. 1961, stúdent frá M.A., skrifstofutæknir í Reykjavík. Maki: Pálmi Aðalbjörnsson, f. 21. febr. 1960, rafeindavirki. 2) Jón Tryggvi, f. 23. ágúst 1964, lögfræðingur hjá Lífeyrissjóði verkfræðinga í Reykjavík. Sambýliskona: Fjóla Kristjánsdóttir, f. 6. des. 1965, stúdent frá M.H., húsfreyja.

 




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar