Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Baldur Bragason


Baldur Bárður Bragason f. 18. júní 1939 í Reykjavík.



Faðir: Bragi Matthías Steingrímsson, dýralæknir í Reykjavík, á Ísafirði og á Austurlandi með búsetu á Egilsstöðum lengst af, síðar í Laugarási í Biskupstungnahr., Árn., síðast búsettur í Reykjavík, f. 3. ágúst 1907, d. 11. nóv. 1971. For.: Steingrímur Matthíasson, héraðs- og spítalalæknir á Akureyri, f. 31. mars 1876, d. 27. júlí 1948, og k.h. Kristín Þórðardóttir Thoroddsen, húsfreyja, f. 8. sept. 1885, d. 7. okt. 1959.



Móðir: Sigurbjörg Lárusdóttir, húsfreyja í Reykjavík, á Ísafirði, Egilsstöðum og í Laugarási, síðar í Reykjavík, f. 12. jan. 1909. For.: Lárus Halldórsson, prestur á Breiðabólstað í Skógarstrandarhr., Snæf., f. 19. ágúst 1875, d. 17. nóv. 1918, og k.h. Arnbjörg Einarsdóttir, húsfreyja, f. 11. júlí 1879, d. 30. nóv. 1945.



Nám: Stúdent frá M.A. 1959. Nám í læknisfræði við H.Í. 1959-62 og í tannlæknisfræði 1964-71, cand. odont. þaðan 1971. Tannlækningaleyfi 6. okt. 1971.



Störf: Stundaði ýmsa verkamannavinnu frá ársbyrjun til hausts 1963, m.a. á síldarplani á Raufarhöfn og Vopnafirði. Kennari í stærðfræði og eðlisfræði við Miðskólann á Selfossi 1963-64. Ýmis verkamannavinna á sumrin á háskólaárum, m.a. í Sænska frystihúsinu og við Búrfellsvirkjun. Aðstoðartannlæknir hjá Birgi J. Jóhannssyni í Reykjavík frá mars 1971 til júlí 1975 og skólatannlæknir hjá Reykjavíkurborg á sama tíma. Tannlæknir í Bolungarvík frá sept. 1975 til apríl 1976. Aðstoðartannlæknir hjá Magnúsi R. Gíslasyni í Reykjavík frá maí 1976 til okt. 1977. Tannlæknir í Ólafsvík frá nóv. 1977 til júlí 1981 og í Hveragerði frá sept. 1981 til okt. 1982. Skólatannlæknir hjá Reykjavíkurborg frá okt. 1982 til maí 1983. Rak eigin tannlækningastofu á Sauðárkróki frá júní 1983 til ágúst 1994. Héraðstannlæknir í Nesseby kommune í Varangerbotni í Finnmörku í Noregi (hjá Finnmark fylkeskommunale tannhelsetjeneste) frá 5. sept. 1994 og í Kirkenes í Sør-Varangerkommune frá 17. febr. 1997, búsettur í Bjørnevatn.



Félags- og trúnaðarstörf: Tók Baháítrú 1966. Átti sæti í Andlegu svæðisráði baháía í Reykjavík 1966-71, í Kópavogi 1972-74 og í Hveragerði 1981-83. Í Andlegu þjóðarráði baháía á Íslandi frá stofnun þess 1973 til 1977.



Maki I: 25. apríl 1963, Anna Maggý Pálsdóttir, f. 3. maí 1943, húsfreyja, nú búsett í Kópavogi. Þau skildu 14. okt. 1974, lögsk. 12. nóv. 1975. For.: Páll Jónsson, vélstjóri í Reykjavík, f. 18. sept. 1895, d. 16. jan. 1945, og Anna Ingveldur Magnúsdóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 26. maí 1903, d. 21. jan. 1974.



Synir þeirra: 1) Páll, f. 9. ágúst 1963, smiður í Kópavogi. 2) Lárus, f. 1. okt. 1964, rafvirki í Kópavogi. 3) Bragi Óskar, f. 17. júlí 1972, vistmaður á meðferðarheimili einhverfra á Seltjarnarnesi.



Maki II: 9. des. 1975, Elín Esmat Paimani, f. 6. mars 1940, húsfreyja. For.: Fazlulláh Paimani, kaupmaður í Neyriz og Shiraz í Íran, f. 16. nóv. 1895, d. 2. nóv. 1960, og k.h. Nozrat Paimani, húsfreyja, f. 3. nóv. 1898, d. 7. jan. 1991.



Sonur þeirra: Robert Badi, f. 16. sept. 1976, nemi við H.Í.





Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar