Benedikt B. Ægisson
Benedikt Bjarki Ægisson f. 22. okt. 1970 í Reykjavík. Faðir: Sigurður Ægir Jónsson, innheimtustjóri í Reykjavík, f. 20. mars 1943, d. 10. sept. 1987. For.: Jón Guðmundur Sigurgeirsson, stýrimaður í Reykjavík, f. 9. nóv. 1912, d. 11. jan. 1944 (fórst með b.v. Max Pemberton), og k.h. Aðalheiður Sigurðardóttir, húsfreyja, f. 6. des. 1915. Móðir: Helga Guðmundsdóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 6. júní 1943. For.: Guðmundur Þorsteinsson, málarameistari og listmálari í Reykjavík, f. 18. des. 1909, d. 6. jan. 1965, og k.h. Guðrún Alda Pétursdóttir, verslunarmaður, f. 16. okt. 1919. Nám: Stúdent frá M.R. 1990. Cand. odont. frá H.Í. í júní 1997. Störf: Almenn löggæslustörf hjá Lögreglunni í Reykjavík sumrin 1991-95. Aðstoðartannlæknir hjá Guðmundi Lárussyni og Inga Kr. Stefánssyni sumarið 1996. Tannlæknir hjá Ólafi G. Karlssyni og Kristjáni Ingólfssyni í Reykjavík frá maí 1997. Sambýliskona: 1994, Unnur Guðjónsdóttir, f. 21. ágúst 1972, stúdent frá M.R. 1992, nemi í hjúkrunarfræði við H.Í. For.: Guðjón Axelsson, tannlæknir í Reykjavík og prófessor við Háskóla Íslands, f. 21. okt. 1935, og k.h. Sólveig Guðmundsdóttir, kennari, f. 21. febr. 1942. Börn þeirra: 1) Ægir, f. 13. jan. 1995. 2) Lilja, f. 17. febr. 1997. Skyldleiki/tengdir: Guðjón Axelsson (faðir eiginkonu). |
Mynd








