Jónas Geirsson
Jónas Geirsson f. 5. júní 1961 í Reykjavík. Faðir: Geir Christensen, rafvirkjameistari, tæknifulltrúi hjá RÚV-Útvarpi í Reykjavík, f. 10. júní 1927. For.: Evald Karl Mads Christensen, lögregluþjónn í Neskaupstað, f. 21. maí 1905, d. 15. júlí 1984, og k.h. Þorbjörg Jónína Guðmundsdóttir Christensen, húsfreyja, f. 22. júlí 1898, d. 2. mars 1968. Móðir: Guðrún Eðvaldsdóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 31. júlí 1937. For.: Eðvald Jónsson, útgerðarmaður á Djúpavogi, S-Múl., f. 19. maí 1904, d. 21. júní 1964, og k.h. Hólmfríður Einarsdóttir, húsfreyja, síðar í Kópavogi, f. 23. maí 1912, d. 9. apríl 1994. Nám: Stúdent frá M.R. 1981. Cand. odont. frá H.Í. 1988. Tannlækningaleyfi 3. ágúst 1988. Störf: Aðstoðartannlæknir á Vopnafirði júní-ágúst 1987. Hefur rekið eigin tannlækningastofu á Akranesi frá júlí 1988. Félags- og trúnaðarstörf: Ritstjóri Harðjaxls 1984-85. Formaður Félags íslenskra tannlæknanema 1986-87. Í ritnefnd Tannlæknablaðsins 1990-92. Í stjórn Stangveiðifélags Akraness frá 1994. Í stjórn Félags íslenskra réttartannlækna frá 1995. Varamaður í auðkenningarnefnd RLR (ID-nefnd) frá 1995. Í ritnefnd Tannlæknatals frá 1995. Ritstörf: Greinar í Harðjaxli. Maki: 3. sept. 1988, Hafdís Dögg Hafsteinsdóttir, f. 15. nóv. 1964, stúdent frá F.V. 1984, B.A. í bókasafnsfræði og þýsku frá H.Í. 1997. For.: Hafsteinn Sigurbjörnsson, pípulagningameistari á Akranesi, f. 5. okt. 1931, og k.h. Sigurrós Lára Ágústsdóttir, húsfreyja og verslunarmaður, f. 9. júní 1937. Börn þeirra: 1) Trausti Geir, f. 27. mars 1990. 2) Dagmar Elsa, f. 14. sept. 1993. Skyldleiki/tengdir: Grétar Björn Sigurðsson og Héðinn Sigurðsson (tvím. við maka).
|
Mynd








