Benedikt Jónsson f. 13. júlí 1962 í Reykjavík.
Faðir: Jón Benediktsson, vélstjóri í Njarðvík, f. 28. sept. 1941. For.: Benedikt Jónsson, forstjóri í Keflavík, f. 17. sept. 1919, og k.h. Margrét Agnes Helgadóttir, húsfreyja, f. 28. júní 1914, d. 17. nóv. 1994.
Móðir: Kristjana Kjeld, skrifstofumaður í Njarðvík, f. 17. júlí 1944, d. 15. sept. 1984. For.: Jens Sofus Kjeld, smiður í Njarðvík og síðar í Hafnarfirði, f. 13. okt. 1908, d. 2. okt. 1980, og k.h. Jóna Guðrún Finnbogadóttir Kjeld, húsfreyja, f. 28. sept. 1911, d. 14. nóv. 1994.
Nám: Stúdent frá F.Sn. 1981. Cand. odont. frá Karolinska Institutet í Stokkhólmi 1989. Tannlækningaleyfi í Svíþjóð 15. febr. 1990 og á Íslandi 14. júní 1990.
Störf: AT-tannlæknir í Arboga í Svíþjóð 1989-90. Tannlæknir á stofu Inga Gunnlaugssonar í Keflavík frá febr. 1990 til maí 1994. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Keflavík frá 1. júní 1994.
Maki: 15. ágúst 1987, Inga Rebekka Árnadóttir, f. 6. júlí 1964, hjúkrunarfræðingur frá Nordendalskolan í Stokkhólmi 1988, hjúkrunarfræðingur. For.: Árni Jósep Júlíusson, húsasmíðameistari í Njarðvík, f. 29. sept. 1943, og k.h. Sólveig Steinunn Jónsdóttir, húsfreyja, f. 26. nóv. 1939.
Börn þeirra: 1) Jón Árni, f. 26. maí 1989. 2) Bjarni, f. 18. ágúst 1991. 3) Kristjana Hanna, f. 16. ágúst 1994.
|