Klæmint Antoniussen
Klæmint Svenning Antoniussen f. 19. sept. 1943 í Húsavík í Færeyjum. Faðir: Esbern Antoniussen, húsasmiður í Oyndarfirði í Færeyjum, f. 4. ágúst 1905, d. 5. júlí 1973. For.: Antines Antoniussen, sjómaður í Oyindarfirði, f. 22. sept. 1872, d. 21. júlí 1930, og k.h. Maren Kristína Antoniussen, húsfreyja, f. 10. ágúst 1872, d. 19. júní 1953. Móðir: Ragnhild Antoniussen, húsfreyja í Oyndarfirði í Færeyjum, f. 24. maí 1912, d. 18. sept. 1968. For.: Clement Clementsen, sjómaður í Húsavík í Færeyjum, f. 14. ágúst 1885, d. 11. mars 1959, og k.h. Sunneva Clementsen, f. Olsen, húsfreyja, f. 29. jan. 1882, d. 26. mars 1974. Nám: Stúdent frá Sorø Akademis Skole á Sjálandi í Danmörku 1963. Cand. odont. frá Tannlæknaskólanum í Kaupmannahöfn 27. júní 1969. Tannlækningaleyfi í Danmörku 7. sept. 1969 og á Íslandi 30. okt. 1970. Störf: Skólatannlæknir í Þórshöfn í Færeyjum frá júlí 1969 til júlí 1970. Skólatannlæknir í Skopun í Færeyjum í júlí 1970. Tannlæknir í Stykkishólmi frá ágúst 1970. Félags- og trúnaðarstörf: Forseti Rótarýklúbbs Stykkishólms 1978-79 og 1991-92. Gjaldkeri Golfklúbbsins Mostra í Stykkishólmi 1986-96. Maki: 19. júlí 1969, Ólöf Ólafsdóttir, f. 30. des. 1946, aðstoðarmaður tannlæknis. For.: Ólafur Jónatansson, verkstjóri í Stykkishólmi, f. 16. febr. 1907, d. 24. febr. 1970, og k.h. Guðríður Guðmundsdóttir, húsfreyja, f. 27. ágúst 1908, d. 15. okt. 1982. Börn þeirra: 1) Ragnar, f. 30. sept. 1967, kerfisfræðingur í Reykjavík. Sambýliskona: Ásta Guðrún Eiríksdóttir Beck, f. 12. maí 1971, lögfræðingur. 2) Bernharð, f. 27. apríl 1972, nemi við H.Í. 3) Guðrún, f. 5. júlí 1973, búsett í Hafnarfirði. Sambýlismaður: Þorsteinn J Þorsteinnsson f. 10.maí 1971
|
Mynd








