Berglind Jóhannsdóttir f. 14. nóv. 1963 í Reykjavík.
Faðir: Jóhann Ágúst Gunnarsson, rafvirkjameistari í Reykjavík, f. 5. mars 1932, d. 7. sept. 1987. For.: Gunnar Björn Halldórsson, línumaður og verkstjóri hjá Rafmagnsveitum ríkisins í Reykjavík, f. 9. sept. 1900, d. 13. okt. 1978, og k.h. Aðalheiður Magnea Jóhannsdóttir, húsfreyja, f. 6. sept. 1904, d. 26. júlí 1989.
Móðir: Ingibjörg Sigurðardóttir, handavinnukennari í Reykjavík, f. 15. mars 1931, d. 1. júní 1996. For.: Sigurður Kristjánsson, vélstjóri og útgerðarmaður í Hafnarfirði, f. 23. apríl 1900, d. 6. sept. 1965, og k.h. Valgerður Jóna Ívarsdóttir, húsfreyja, f. 28. júlí 1901, d. 27. ágúst 1987.
Nám: Stúdent frá M.S. 1983. Cand. odont. frá H.Í. 1989. Tannlækningaleyfi 22. sept. 1989. Framhaldsnám í tannréttingum við Björgvinjarháskóla 1992-95, lauk sérfræðiprófi í tannréttingum þaðan vorið 1995. Sérfræðingsleyfi í tannréttingum 3. jan. 1996.
Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Teiti Jónssyni á Akureyri júní-ágúst 1988, hjá Guðjóni Kristleifssyni í Reykjavík frá sept. 1989 til júní 1991 og hjá Gísla Vilhjálmssyni í Reykjavík frá sept. 1991 til júlí 1992. Jafnframt skólatannlæknir í Árbæjarskóla 1989-92. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá okt. 1995. - Stundakennari í tannréttingum við tannlæknadeild Háskóla Íslands frá okt. 1995.
Félags- og trúnaðarstörf: Í ársþings- og endurmenntunarnefnd TFÍ 1989-92.
Barnsfaðir: Árni Þórðarson, f. 17. des. 1954, stúdent frá M.R. 1975, cand. odont. frá H.Í. 1982, sérfræðingur í tannréttingum frá Oslóarháskóla 1986, tannlæknir í Reykjavík. For.: Þórður Marel Jónsson, verkamaður í Reykjavík, f. 15. apríl 1908, d. 1. júní 1983, og k.h. Margrét Guðný Árnadóttir, húsfreyja, f. 27. ágúst 1911, d. 4. júní 1990.
Sonur þeirra: Jóhann, f. 14. mars 1989.
Skyldleiki/tengdir: Árni Þórðarson (barnsfaðir)
|