Anna Gerður Richter
Anna Gerður Aðalsteinsdóttir Richter f. 27. apríl 1953 í Reykjavík. Faðir: Aðalsteinn Magnús Stefánsson Richter, arkitekt í Reykjavík, f. 31. okt. 1912. For.: Stefán Jakobsson Richter, skipasmiður á Ísafirði, f. 27. sept. 1879, d. 15. júlí 1963, og k.h. Ingibjörg Magnúsdóttir, húsfreyja, f. 3. nóv. 1884, d. 25. júlí 1975. Móðir: Elisabeth Richter, f. Pontoppidan, húsfreyja í Reykjavík, f. 30. sept. 1920. For.: Svend Pontoppidan, bóksali í Nykøbing á Falster í Danmörku, f. 6. júní 1886, d. 15. jan. 1939, og k.h. Anna Margrethe Pontoppidan, bóksali, f. 18. apríl 1893, d. 8. jan. 1976. Nám: Stúdent frá M.T. 1973. Cand. odont. frá H.Í. 1979. Tannlækningaleyfi 19. nóv. 1979. Störf: Aðstoðarlæknir hjá Páli Jónssyni á Selfossi júní-júlí 1979. Rak eigin tannlækningastofu á Hellu á Rangárvöllum frá ágúst 1979 til sept. 1981, á Heilsugæslustöðinni íBorgarnesi frá okt. 1981 til febr. 1996 og síðan á Skallagrímsgötu 1 í Borgarnesi (ásamt eiginmanni sínum) frá mars 1996. Maki: 29. des. 1974, Örn Ármann Jónsson, f. 28. júlí 1950, stúdent frá M.A. 1970, cand. odont. frá H.Í. 1979, tannlæknir. For.: Jón Helgi Jakobsson, vélvirkjameistari á Húsavík, f. 27. nóv. 1914, d. 29. apríl 1988, og k.h. Fanney Daníelsdóttir, húsfreyja, f. 1. mars 1912, d. maí 2006. Börn þeirra: 1) Elísabet Richter (kjördóttir Arnar, dóttir Önnu f. hjónaband), f. 5. maí 1969, löggiltur læknaritari, RMT frá Kanada, rekur sjúkranuddstofu í Reykjavík. Sambýlismaður: Heimir Sverrisson, f. 5. ágúst 1968, dúklagningamaður. Þau slitu sambúð. Maki: Þorfinnur Sveinn Andreasen f. 11. febr. 1964, vélstjóri, tæknistúdent frá T.Í., B.S. í sjúkraþjálfun frá H.Í., sjúkraþjálfari. 2) Árni Þór, f. 16. sept. 1979, stúdent frá M.A., stud.med. við H.Í. 3) Helga Björk f. 22. sept. 1982, stúdent frá V.Í., B.S. í stærðfræði frá H.Í, burtfararpróf frá Söngskólanum í Reykjavík, við framhaldsnám í óperusöng í Vín Austurríki. Sambýlismaður: Sigurður Karl Magnússon, f. 28.sept. 1978, tæknistúdent frá I.R., kerfisfræðingur frá H.R., B.S. í tölvunarfræði frá H.R., tölvunarfræðingur. Skyldleiki/tengdir: Elfa Guðmundsdóttir (systurdóttir maka), Svend Richter (bróðir), Örn Ármann Jónsson (maki).
|
Mynd








