Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Birgir J. Dagfinnsson

Birgir Jóhannes Dagfinnsson f. 20. jan. 1942 í Reykjavík.


Faðir: Dagfinnur Björn Einarsson, verkstjóri í Reykjavík, f. 6. júlí 1910, d. 12. mars 1986. For.: Einar Dagfinnsson, pípulagningamaður í Reykjavík, f. 12. okt. 1885, d. 31. maí 1970, og k.h. Ingibjörg Guðjónsdóttir, húsfreyja, f. 5. apríl 1887, d. 28. ágúst 1955.


Móðir: Sigfrid Sigfúsdóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 10. júlí 1910, d. 25. sept. 1980. For.: Sigfús Jóhannes Daníelsson, verslunarstjóri í Ísafirði, síðar kaupmaður í Reykjavík, f. 28. júlí 1868, d. 15. maí 1937, og k.h. Anna Daníelsson, f. Klausen (frá Björgvin í Noregi), ljósmyndari, f. 30. okt. 1861, d. 14. okt. 1959.


Nám: Stúdent frá M.R. 1962. Cand. phil. frá H.Í. 1964. Cand. odont. frá Oslóarháskóla 1968. Tannlækningaleyfi 30. sept. 1968.


Störf: Tannlæknir hjá Osló kommune júní-júlí 1968. Aðstoðartannlæknir hjá Ólafi G. Karlssyni í Reykjavík frá ágúst 1968 til mars 1971. Sjálfstætt starfandi tannlæknir í Reykjavík frá mars 1971.


Maki: 29. júlí 1967, Hildigunnur Gunnarsdóttir Hlíðar, f. 22. ágúst 1944, stúdent frá M.L. 1964, exam. pharm. frá H.Í. 1976, aðstoðardeildarstjóri hjá Rannsóknastofu Háskólans í lyfjafræði. For.: Gunnar Einarsson Sigurðsson Hlíðar, dýralæknir í Vestmannaeyjum og símstöðvarstjóri í Borgarnesi, f. 20. maí 1914, d. 22. des. 1957, og k.h. Hólmfríður Ingunn Sigurjónsdóttir Hlíðar, hjúkrunarkona, f. 10. ágúst 1910, d. 7. apríl 1994.


Börn þeirra: 1) Björn Gunnar, f. 2. júlí 1969, rafeindavirki í Reykjavík. Maki: Freyja Björk Gunnarsdóttir, f. 16. sept. 1970, kennari. 2) Anna Guðrún, f. 12. apríl 1977, nemi. 3) Birgir Örn, f. 16. okt. 1988, nemi.




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar