Páll Jónsson
Páll Jónsson f. 22. ágúst 1924 á Búðareyri við Reyðarfjörð, S-Múl. Faðir: Jón Pálsson, héraðsdýralæknir í Austfirðingafjórðungi með aðsetur á Búðareyri við Reyðarfjörð, S-Múl., og síðar héraðsdýralæknir í Suðurlandsumdæmi, búsettur á Selfossi, f. 7. júní 1891, d. 19. des. 1988. For.: Páll Þorsteinsson, óðalsbóndi og hreppstjóri í Tungu í Fáskrúðsfjarðarhr., S-Múl., f. 22. okt. 1863, d. 2. des. 1959, og k.h. Elínborg Stefánsdóttir, húsfreyja, f. 18. des. 1867, d. 2. júní 1951. Móðir: Áslaug Ólafsdóttir Stephensen, húsfreyja á Búðareyri við Reyðarfjörð og síðar á Selfossi, f. 23. apríl 1895, d. 30. okt. 1981. For.: Ólafur Magnússon Stephensen, prestur á Felli í Mýrdal, V-Skaft., og á Lágafelli í Mosfellssveit, útvegsbóndi í Skildinganesi og á Grund í Grundarfirði, síðar prófastur í Bjarnanesi í Nesjahr., A-Skaft., síðast bóndi á Auðnum á Vatnsleysuströnd, Gullbr., f. 24. júlí 1863, d. 10. mars 1934, og k.h. Steinunn Eiríksdóttir, húsfreyja, f. 1. febr. 1870, d. 21. mars 1957. Nám: Stúdent frá M.A. 1945. Cand. odont. frá H.Í. í febr. 1951. Tannlækningaleyfi 14. febr. 1951. Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Jóni Kr. Hafstein í Reykjavík febr.-sept. 1951. Tannlæknir á Selfossi og jafnframt fyrsti tannlæknir á Suðurlandi frá 9. sept. 1951. Félags- og trúnaðarstörf: Formaður stjórnar Félags íslenskra tannlæknanema 1950. Formaður Sjálfstæðisfélagsins Óðins 1953-57. Formaður stjórnar Hestamannafélagsins Sleipnis 1954-56. Formaður stjórnar Stúdentafélags Suðurlands 1957-59. Forseti Rótarýklúbbs Selfoss 1962-63. Formaður Norræna félagsins á Selfossi 1968-75. Varafulltrúi í hreppsnefnd Selfosshrepps í forföllum aðalfulltrúa 1968-70 og aðalfulltrúi 1970-78. Bæjarfulltrúi í fyrstu bæjarstjórn Selfoss 1978-82. Í stjórnarnefnd Sjúkrahúss Suðurlands frá 1971. Varaformaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga 1974-82. Hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum á vegum Sjálfstæðisflokksins. Í flokksráði Sjálfstæðisflokksins 1979-83. Í ritnefnd Tannlæknatals frá 1995. Ritstörf: Fjöldi greina í blöðunum Suðurlandi og Dagskrá, útg. á Selfossi. Maki: 29. ágúst 1951, Þórhildur Svava Þorsteinsdóttir, f. 4. febr. 1931, húsfreyja. For.: Þorsteinn Tyrfingsson, bóndi í Rifshalakoti í Ásahr., Rang., f. 28. apríl 1891, d. 22. okt. 1973, og Guðbjörg Bjarnadóttir, verkakona í Reykjavík, f. 28. sept. 1886, d. 27. nóv. 1970. Börn þeirra: 1) Áslaug, f. 15. sept. 1958, tannsmiður á Selfossi. Sambýlismaður: Guðmundur Jónsson, f. 13. júlí 1961, verktaki. 2) Jón, f. 2. des. 1959, flugvirki hjá Landhelgisgæslu Íslands, búsettur í Hafnarfirði. Maki: Aðalheiður Jóna Gunnarsdóttir, f. 26. sept. 1958, skrifstofumaður. 3) Þorsteinn, f. 18. nóv. 1964, tannlæknir á Selfossi. Sambýliskona: Jónína Kristjánsdóttir, f. 3. apríl 1972, nemi. Skyldleiki/tengdir: Ólafur Hans Grétarsson (P.J. tvím. við móður Ó.H.G.), Ólafur J. Ólafson og Páll J. Ólafson (tvím. við móður), Sveinbjörn Jakobsson (systursonur maka), Sveinn J. Patursson (þremenningur), Sæmundur Pálsson (P.J. tvím. við föður S.P.), Thorsteinn Patursson (þremenningur), Þorsteinn Pálsson (sonur). |
Mynd








