Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Petra Sigurðardóttir

Petra Sigurðardóttir f. 3. jan. 1967 í Reykjavík.


Faðir: Sigurður Líndal Viggósson, tannlæknir í Reykjavík, f. 19. okt. 1941. For.: Viggó Ágúst Loftsson, bakari, matreiðslumaður, sjómaður og hótelstjóri á Eskifirði, síðar í Reykjavík, f. 13. sept. 1909, d. 15. júlí 1994, og k.h. Kristín Jónína Þorsteinsdóttir, húsfreyja, f. 11. júní 1913.


Móðir: Esther Pétursdóttir, þroskaþjálfi í Reykjavík, f. 20. apríl 1943. (Esther og Sigurður skildu.) For.: Pétur Pétursson, bifreiðarstjóri og verkstjóri í Reykjavík, f. 10. mars 1895, d. 14. júlí 1986, og k.h. Kristín Soffía Jónsdóttir, húsfreyja og saumakona, f. 14. nóv. 1909.


Nám: Stúdent frá M.H. 1986. Cand. odont frá Karolinska Institutet í Stokkhólmi 1992. Tannlækningaleyfi í Svíþjóð í ágúst 1993 og á Íslandi 18. júlí 1994.


Starf: Tannlæknir á Hellu á Rangárvöllum frá sept. 1993 með búsetu á Selfossi.


Sambýlismaður: Sept. 1993, Hallur Halldórsson, f. 26. des. 1963, stúdent frá V.Í. 1983, cand. odont. frá H.Í. 1990, tannlæknir á Selfossi. For.: Halldór Skaftason, veitingastjóri í Reykjavík, f. 26. febr. 1942, og k.h. Þorgerður Ína Gissurardóttir, deildarstjóri og húsfreyja, f. 10. júlí 1943.


Börn þeirra: 1) Andri Hrafn, f. 15. mars 1991. 2) Esther, f. 29. sept. 1995.


Skyldleiki/tengdir: Hallur Halldórsson (sambýlismaður), Sigurður L. Viggósson (faðir).




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar