Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Birgir J. Jóhannsson


Birgir Jóhann Jóhannsson f. 27. mars 1929 á Grenivík í Grýtubakkahr., S-Þing.



Faðir: Jóhann Jeremías Kristjánsson, héraðslæknir á Grenivík í Grýtubakkahr., S-Þing., og á Ólafsfirði, síðast í Reykjavík, f. 7. júní 1898, d. 3. okt. 1974. For.: Kristján Þórarinn Einarsson, sjómaður og trésmiður í Reykjavík, f. 6. des. 1868, d. 30. mars 1955, og k.h. Sigríður Hafliðadóttir, húsfreyja, f. 4. apríl 1873, d. 15. júlí 1960.



Móðir: Inga Guðmundsdóttir, húsfreyja á Grenivík í Grýtubakkahr., S-Þing., á Ólafsfirði og í Reykjavík, f. 30. mars 1896, d. 22. okt. 1970. For.: Guðmundur Pétursson, nuddlæknir í Kaupmannahöfn og Reykjavík, síðast í Merki á Eskifirði, f. 24. maí 1873, d. 18. febr. 1944, og k.h. Elín Björg Runólfsdóttir, húsfreyja og ljósmóðir, f. 12. febr. 1874, d. 5. júní 1948.



Nám: Stúdent frá M.A. 1949. Nám í læknisfræði við H.Í. 1949-50. Cand. odont. frá H.Í. 1956. Tannlækningaleyfi 19. júní 1956.



Störf: Aðstoðartannlæknir í Reykjavík hjá tannlæknunum Gunnari Skaptasyni, Hauki Clausen og Skúla Hansen frá 1. júní 1956 til 30. nóv. 1957. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá 9. des. 1957.



Félags- og trúnaðarstörf: Formaður stjórnar Félags íslenskra tannlæknanema um skeið. Ritari í stjórn TFÍ 1965-67. Hefur starfað í fjölmörgum nefndum á vegum TFÍ, m.a. í skemmtinefnd 1959-61, bílaúthlutunarnefnd 1960-62, minjasafnsnefnd frá 1962, formaður hennar frá 1965, í kúrsursnefnd 1965-66, í félagsheimilisnefnd 1968-70, í samninganefnd við tannsmiði 1972-81, í taxtanefnd TFÍ 1977-84 og í samninganefnd TFÍ við T.R. 1986-87. Í stjórn Dentalíu hf. frá 1961, formaður 1973-82. Endurskoðandi TFÍ 1962-63. Formaður Sjóstangaveiðifélags Reykjavíkur 1963-66 og 1971-73. Í skólanefnd Tannsmíðaskóla TFÍ 1965-67 og 1974-81. Í ritnefnd Árbókar TFÍ 1966-70. Í stjórn Dentex 1972. Í stjórn Landssambands stangaveiðifélaga frá 1972, formaður 1981-84. Formaður Lionsklúbbsins Fjölnis í Reykjavík 1976-77. Í ritnefnd Tannlæknatals 1982-92. Formaður stjórnar TFÍ 1984-86. Í gerðardómi TFÍ 1992-95. Formaður Lionsklúbbsins Fjölnis 1996-97. Í stjórn Minningasjóðs Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar.



Viðurkenning: Melvin Jones-félagi Lionshreyfingarinnar 1993. Kjörinn heiðursfélagi Tannlæknafélags Íslands 6. nóvember 2003



Maki: 6. okt. 1952, Jóhanna Ásdís Jónasdóttir, f. 4. maí 1929, gagnfræðingur, húsfreyja. For.: Jónas Guðmundsson, trésmiður á Siglufirði, f. 25. maí 1885, d. 24. ágúst 1960, og k.h. Guðrún Ingibjörg Sigurjónsdóttir, húsfreyja, f. 26. júní 1889, d. 19. apríl 1983.



Börn þeirra: 1) Guðrún, f. 22. febr. 1952, fjölmiðlafræðingur í Reykjavík. Maki: Richard Ólafur Gunnlaugsson Briem, f. 21. ágúst 1950, arkitekt. 2) Jónas Birgir, f. 25. des. 1953, tannlæknir í Reykjavík. Maki: Stella Guðmundsdóttir, f. 23. sept. 1957, húsfreyja. 3) Inga Jóhanna, f. 17. júní 1957, kennari og tannfræðingur í Reykjavík. Maki: Halldór Úlfarsson, f. 13. apríl 1952, úrsmiður og verslunarmaður. 4) Sigrún, f. 18. des. 1960, kennari í Reykjavík. Maki: Óskar Baldursson, f. 19. apríl 1957, auglýsingateiknari. 5) Haukur, f. 5. okt. 1964, markaðsfræðingur. Maki: Áslaug María Magnúsdóttir, f. 18. apríl 1967, hagfræðingur.



Skyldleiki/tengdir: Jóhann Guðmundsson (bróðursonur), Jónas Birgir Birgisson (sonur), Úlfar Guðmundsson (B.J.J. tvím. við föður Ú.G.).





Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar