Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Sigríður Sverrisdóttir


Sigríður Sverrisdóttir f. 17. apríl 1956 í Reykjavík.



Faðir: Páll Sverrir Guðmundsson, bifreiðarstjóri í Reykjavík, f. 23. nóv. 1917. For.: Guðmundur Snorrason, bóndi á Læk í Hraungerðishr., Árn., f. 20. júlí 1874, d. 16. okt. 1938, og k.h. Sigríður Bjarnadóttir, húsfreyja, f. 4. sept. 1877, d. 27. maí 1943.



Móðir: Björgheiður Eiríksdóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 13. mars 1928. For.: Eiríkur Pétursson, bóndi í Egilsseli í Fellahr., N-Múl., f. 13. júní 1883, d. 28. ágúst 1953, og k.h. Sigríður Brynjólfsdóttir, húsfreyja, f. 2. mars 1888, d. 26. maí 1954.



Nám: Stúdent frá M.R. 1976. Cand. odont. frá H.Í. 1982. Tannlækningaleyfi 17. des. 1982.



Starf: Hefur rekið eigin tannlækningastofu á Selfossi frá júní 1982.



Maki: 4. sept. 1982, Hlöðver Örn Rafnsson, f. 23. febr. 1954, stúdent frá V.Í. 1975, cand. oecon. frá H.Í. 1981, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali. For.: Rafn Gestsson, verðgæslumaður á Ísafirði, bankafulltrúi þar og síðar í Reykjavík, f. 4. mars 1923, og k.h. Helga Guðrún Helgadóttir, tannsmiður og píanókennari, f. 26. ágúst 1926.



Börn þeirra: 1) Sverrir Örn, f. 29. apríl 1983. 2) Heiðrún Erna, f. 3. okt. 1988.



Skyldleiki/tengdir: Ketill Högnason (tvím. við maka).





Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar