Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Sigurjón Benediktsson


Sigurjón Benediktsson f. 14. ágúst 1951 í Reykjavík.



Faðir: Benedikt Sigurjónsson, hæstaréttardómari í Reykjavík, f. 24. apríl 1916, d. 16. okt. 1986. For.: Sigurjón Jónasson, bóndi og oddviti í Hólakoti og á Skefilsstöðum í Skefilsstaðahr., Skag., f. 9. sept. 1877, d. 10. nóv. 1959, og k.h. Margrét Sigurlaug Stefánsdóttir, húsfreyja, f. 16. apríl 1876, d. 20. febr. 1960.



Móðir: Guðfinna Fanney Stefánsdóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 9. des. 1905, d. 17. jan. 1990. For.: Guðbrandur Þorsteinsson, bóndi á Loftsölum í Mýrdal, Dyrhólahr., V-Skaft., f. 5. des. 1869, d. 25. júlí 1951, og k.h. Elín Björnsdóttir, húsfreyja, f. 31. okt. 1872, d. 28. okt. 1946. Kjörfor. (Fanneyjar): Stefán Gíslason, læknir í Vík í Mýrdal, f. 12. nóv. 1859, d. 1. mars 1933, og seinni k.h. Anna Jónsdóttir, húsfreyja, f. 20. jan. 1864, d. 4. júní 1942.



Nám: Stúdent frá M.R. 1971. Cand. odont. frá H.Í. 1977. Tannlækningaleyfi 17. mars 1978. Framhaldsnám í fyrirbyggjandi tannlækningum við University of Alabama í Birmingham í Bandaríkjunum 1980-81. Framhaldsnám við Oral Biology-deild sama háskóla 1989-91, M.Sc. í Oral Biology þaðan í júní 1991. - Einkaflugmannspróf 22. okt. 1986.



Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Ólafi G. Karlssyni í Reykjavík júní-sept. 1977. Tannlæknir á Húsavík frá sept. 1977 að frátöldum árum í framhaldsnámi.



Félags- og trúnaðarstörf: Questor scholaris M.R. 1969-70. Í Stúdentaráði H.Í. 1975-76. Varamaður í stjórn Tannlæknafélags Norðurlands 1978-80, ritari 1982-84 og formaður 1984-85. Formaður Kríuvinafélags Húsavíkur frá stofnun 1979. Í heilbrigðisnefnd Húsavíkur 1982-86. Í fræðslunefnd TFÍ 1984-85. Í samninganefnd TFÍ við T.R. 1986-87. Kjörinn varabæjarfulltrúi á Húsavík fyrir Víkverja 1986-90. Í atvinnumálanefnd Húsavíkur 1986-90. Einn af frumherjum umhverfissamtakanna Húsgull á Húsavík frá stofnun 1988. Í umhverfismálaráði Húsavíkur 1990-95. Í ársþings- og endurmenntunarnefnd TFÍ 1992-93. Bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Húsavík frá 1994 og í bæjarráði Húsavíkur frá sama tíma. Í fagráði Landgræðslu ríkisins 1994-97. Í stjórn Fiskiðjusamlags Húsavíkur hf. frá 1995. Í gjaldskrárnefnd TFÍ frá 1996. Formaður Taflfélags Húsavíkur í nokkur ár. Í stjórn Skógræktarfélags Húsavíkur og Skógræktarfélags Suður-Þingeyinga í nokkur ár. Hefur setið í mörgum tíma- og verkefnabundnum nefndum og ráðum á Húsavík.



Ritstörf: Adhesiveness of Dentin. A Contact Angle Study. Thesis. The University of Alabama at Birmingham, Alabama, 1991. - Greinar og ritgerðir: The Effect of Contact Time of Acidulated Phosphate Fluoride on Fluoride Concentration in Human Enamel, Archives of Oral Biology, 27:1982, 567-572; Fluoride Uptake and Harness of Bovine Enamel after Treatment with a Fluoride Varnish, J. Dent. Res., 60:1982 (Special Issue); Fluoride Uptake after ATP Treatment, sst., 60:1982 (Special Issue); Critical Surface Tension of Wetting of Dentin, sst., 70:1992 (Special Issue); Tannbeinsfesta athuguð með snertihornamælingu I. Yfirlit. Tannlæknablaðið, 11:1993, 15-21; Hóprannsókn á Húsavík (útdráttur, ásamt Sigurði V. Guðjónssyni, lækni). 2. Vísindaþing Félags íslenskra heimilislækna 28.-30. okt. 1994. Læknadeild H.Í. og Félag íslenskra heimilislækna; Húsavíkurpistill, Harðjaxl, 16:1979 (2), 79-80; Fátt eitt um Fluorprotector, sst., 20:1982 (1), 7-14; Norðurljós, Tannlæknablaðið, 2:1984 (1), 49; Punktar frá fræðslunefnd TFÍ, sst., 2:1984 (1), 48; Norðurljós. Uppljóstranir um TFN, sst., 1:1983 (1), 42-43; Um eðli tannlækninga á útnesjum og inndölum í Þingeyjarþingi norður og aðskiljanlegar uppljóstranir um tennur og tannheilbrigði nokkurra tólf ára barna þar í sveit. MCMLVXXXVII A.D., sst., 6:1988 (1), 34-36; Er ekki kominn tími til að tengja?, sst., 5:1987 (1), 42-43; Gegn ofneyslu sykurs, sst., 3:1986 (2), 44-46. Auk þess fjöldi greina um tannlækningar, stjórnmál og umhverfismál í blöðum og tímaritum.



Maki: 10. febr. 1974, Snædís Gunnlaugsdóttir, f. 14. maí 1952, stúdent frá M.R. 1972, cand. juris frá H.Í. 1977, héraðsdómslögmaður, fulltrúi hjá sýslumanninum á Húsavík. For.: Gunnlaugur Þórðarson, hæstaréttarlögmaður í Reykjavík, f. 14. apríl 1919, og k.h. (skildu) Herdís Þorvaldsdóttir, leikkona, f. 15. okt. 1923.



Börn þeirra: 1) Sylgja Dögg, f. 22. okt. 1973, nemi í landfræði við H.Í. Sambýlismaður: Pálmi Steingrímsson, f. 20. des. 1972, háskólanemi. 2) Harpa Fönn, f. 17. ágúst 1981, nemi. 3) Benedikt Þorri, f. 15. sept. 1983, nemi.



Skyldleiki/tengdir: Ingjaldur Bogason (tvímenningur).





Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar