Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Sigurjón Guðmundsson

Sigurjón Guðmundsson f. 23. ágúst 1949 á Húsavík, S-Þing.


Faðir: Guðmundur Finnbogason, sjómaður og verkamaður á Húsavík, f. 16. des. 1914, d. 1. sept. 1991. For.: Helgi Finnbogi Guðmundsson, bóndi og sjómaður í Krossadal í Tálknafirði, V-Barð., f. 21. júní 1879, d. 3. maí 1923, og k.h. Vigdís Helga Guðmundsdóttir, húsfreyja, f. 4. jan. 1887, d. 14. ágúst 1983.


Móðir: Sigurbjörg Sigurjónsdóttir, húsfreyja og verkakona á Húsavík, f. 24. nóv. 1921. For.: Sigurjón Jónasson, útvegsbóndi og verslunarmaður í Flatey á Skjálfanda, S-Þing., og síðar á Húsavík, f. 15. apríl 1895, d. 17. jan. 1984, og k.h. Jakobína Pálsdóttir, húsfreyja, f. 17. júlí 1896, d. 17. apríl 1983.


Nám: Stúdent frá M.A. 1969. Cand. odont. frá H.Í. 1976. Tannlækningaleyfi 24. ágúst 1976.


Störf: Rak eigin tannlækningastofu á Ísafirði frá júlí 1976 til júní 1982. Tannlæknir á Akranesi frá júlí 1982 til ágúst 1983. Tannlæknir á Ísafirði frá sept. 1983.


Maki: 15. júlí 1978, Ása Grímsdóttir, f. 12. júní 1957, stúdent frá M.Í. 1991, B.Ed. frá K.H.Í. 1996, húsfreyja og kennari. For.: Grímur Jónsson, loftskeytamaður og flugumsjónarmaður á Ísafirði, f. 6. ágúst 1927, og k.h. Jóhanna Bárðardóttir, húsfreyja, f. 16. maí 1924.


Börn þeirra: 1) Sigurbjörg, f. 6. júní 1978, nemi við M.L. 2) Jóhann, f. 18. febr. 1980, nemi við M.L. 3) Aðalbjörg, f. 31. maí 1984. 4) Ásrún, f. 18. sept. 1987.


Skyldleiki/tengdir: Guðríður Anna Kristjánsdóttir (þremenningur), Jakob Jónsson (tvímenningur).


 




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar