Stefán Haraldsson f. 23. apríl 1950 á Húsavík, S-Þing.
Faðir: Haraldur Gíslason, mjólkurbússtjóri á Húsavík, S-Þing., f. 28. apríl 1915, d. 27. des. 1984. For.: Gísli Brynjólfsson, bóndi á Haugi í Flóa, Gaulverjabæjarhr., Árn., f. 16. mars 1871, d. 21. ágúst 1961, og k.h. Kristín Jónsdóttir, húsfreyja, f. 18. nóv. 1878, d. 12. febr. 1963.
Móðir: Valgerður Sigfúsdóttir, húsfreyja á Húsavík, S-Þing., f. 26. febr. 1925. For.: Finnur Sigfús Hallgrímsson, bóndi í Vogum í Mývatnssveit, Skútustaðahr., S-Þing., f. 11. ágúst 1883, d. 14. júlí 1966, og k.h. Sólveig Stefánsdóttir, húsfreyja, f. 25. sept. 1891, d. 10. des. 1967.
Nám: Stúdent frá M.A. 1970. Cand. odont. frá H.Í. 1977. Tannlækningaleyfi 21. nóv. 1978. Nám við kirurgideild Tannlæknaháskólans í Árósum veturinn 1988-89.
Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Páli Jónssyni á Selfossi júní-ágúst 1977. Sjálfstætt starfandi tannlæknir á Húsavík frá ágúst 1977.
Félags- og trúnaðarstörf: Í stjórn Félags íslenskra tannlæknanema 1974-76. Formaður Hestamannafélagsins Grana á Húsavík 1978-84 og 1989-91. Ritari í stjórn Tannlæknafélags Norðurlands 1980-82. Í stjórn Hrossaræktarfélags Þingeyinga 1985-92. Varafulltrúi Framsóknarflokksins í bæjarstjórn Húsavíkur 1986-90 og bæjarfulltrúi frá 1990, í bæjarráði frá 1994 og formaður þess 1996-98. Formaður skólanefndar Húsavíkur 1986-90 og skólanefndar Framhaldsskólans á Húsavík 1990-96. Í fræðsluráði Norðurlandskjördæmis eystra 1986-90. Formaður Listaverkasjóðs Húsavíkur 1990-94. Í miðstjórn Framsóknarflokksins frá 1996. Í Héraðsnefnd og Héraðsráði Þingeyinga frá 1997.
Ritstörf: Nokkrar greinar í hestatímaritum og Tannlæknablaðinu.
Maki: 2. ágúst 1974, Valgerður Anna Mikkelsen, f. 18. febr. 1948, stúdent frá M.L. 1968, kennarapróf frá K.Í. 1969, kennari, nú búsett í Mosfellsbæ. Þau skildu 24. júlí 1990, lögsk. 29. okt. 1991. For.: Mangor Harry Mikkelsen mjólkurfræðingur á Selfossi, f. 11. nóv. 1918, og k.h. Valgerður Jóhannsdóttir, húsfreyja, f. 7. apríl 1918.
Börn þeirra: 1) Arnar Þór, f. 29. okt. 1979, nemi við M.R. 2) Ása Sólveig, f. 14. mars 1983.
Sambýliskona: Maí 1991, Friðrika Baldvinsdóttir, f. 2. febr. 1961, læknaritari. For.: Baldvin Baldursson, bóndi á Rangá í Ljósavatnshr., S-Þing., f. 29. júlí 1923, og k.h. Sigrún Jónsdóttir, húsfreyja, f. 17. nóv. 1923, d. 30. júní 1990.
Fóstursynir Stefáns (synir Friðriku og Gunnars Jóhannssonar, málara á Húsavík): 1) Jóhann Kristinn Gunnarsson, f. 22. nóv. 1979, nemi við Fr.H. 2) Hilmar Valur Gunnarsson, f. 11. júlí 1984.
Skyldleiki/tengdir: Sigfús Haraldsson (bróðir).
|