Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Björgvin Ó. Jónsson

Björgvin Óli Jónsson f. 28. jan. 1941 í Kollsvík í Rauðasandshr., V-Barð.



Faðir: Jón Torfason, útvegsbóndi í Kollsvík og síðar í Vatnsdal í Rauðasandshr., V-Barð., síðar verkamaður og sjómaður á Patreksfirði, f. 21. jan. 1892, d. 12. nóv. 1971. For.: Torfi Jónsson, útvegsbóndi í Kollsvík, f. 1. júlí 1857, d. 5. apríl 1904, og k.h. Guðbjörg Ólína Guðbjartsdóttir, húsfreyja, f. 6. ágúst 1862, d. 9. mars 1954.



Móðir: Bergþóra Egilsdóttir, húsfreyja í Kollsvík og síðar í Vatnsdal í Rauðasandshr., V-Barð., síðar á Patreksfirði, f. 17. sept. 1898, d. 11. febr. 1971. For.: Egill Árnason, bóndi á Sjöundá í Rauðasandshr., V-Barð., f. 1. júlí 1862, d. 7. maí 1932, og k.h. Jónína Helga Gísladóttir, húsfreyja, f. 13. des. 1862, d. 15. júlí 1930.



Nám: Stúdent frá M.A. 1961. Cand. odont. frá H.Í. 1968. Tannlækningaleyfi 9. júlí 1968.



Starf: Kennari við Barna- og unglingaskóla Patreksfjarðar veturinn 1961-62. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá júní 1968. - Stundakennari við Tannsmíðaskóla Íslands frá 1989 og við tannlæknadeild Háskóla Íslands frá sept. 1995.



Félags- og trúnaðarstörf: Í ritnefnd Árbókar TFÍ. 1973-75. Ritari í stjórn TFÍ 1985-87. Ritari Lionsklúbbsins Njarðar 1980-81 og formaður 1986-87. Formaður orða- og fræðslunefndar TFÍ frá 1987. Fulltrúi félagsins í Samtökum heilbrigðisstétta 1987-92 og í tannverndarráði 1988-96. Í stjórn Félags sjálfstætt starfandi tannlækna frá 1990. Í gjaldskrárnefnd TFÍ 1990-94.



Maki: 9. ágúst 1969, Esther Ragnheiður Guðmundsdóttir, f. 10. júlí 1948, stúdent frá V.Í. 1968, B.A. í þjóðfélagsfræði frá H.Í. 1975, framkvæmdastjóri Slysavarnafélags Íslands. For.: Guðmundur Guðmundsson Pétursson, ökukennari og leigubifreiðarstjóri í Reykjavík, f. 12. ágúst 1925, og k.h. Einhildur Bára Sigurðardóttir, verslunarmaður, f. 1. mars 1928, d. 31. maí 1982.



Börn þeirra: 1) Bára, f. 24. apríl 1970, d. 5. des. 1991, stúdent frá V.Í., nemi í bókmenntafræði við Háskóla Íslands. Sambýlismaður: Björn Ólafur Ingvarsson, f. 24. júlí 1969, stúdent frá V.Í., lögregluþjónn. 2) Helga Dögg, f. 9. apríl 1974, stúdent frá V.Í., nemi í bókmenntafræði við H.Í. Sambýlismaður: Bjarni Hauksson, f. 5. sept. 1969, lögfræðingur. 3) Ragnheiður, f. 13. mars 1980, nemi við M.H.




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar