Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Sæmundur Holgersson


Sæmundur Snævar Holgersson f. 8. maí 1946 í Reykjavík.



Faðir: Holger Pétur Gíslason, rafvirkjameistari í Garðabæ, f. 15. júní 1912. For.: Gísli Gíslason, verslunarmaður í Reykjavík, f. 31. maí 1884, d. 29. maí 1963, og k.h. Ragnheiður Holgersdóttir Clausen, húsfreyja, f. 24. ágúst 1879, d. 20. sept. 1966.



Móðir: Guðrún Pálína Sæmundsdóttir, húsfreyja í Garðabæ, f. 6. júlí 1913. For.: Sæmundur Bjarnason, formaður og bóndi í Eyjarhólum í Dyrhólahr., V-Skaft., f. 4. okt. 1880, d. 29. mars 1962, og k.h. Oddný Runólfsdóttir, húsfreyja, f. 19. maí 1886, d. 28. jan. 1969.



Nám: Stúdent frá V.Í. 1966. B.D.S. frá University of Edinburgh í Skotlandi 1972. Tannlækningaleyfi 9. ágúst 1972.



Störf: Tannlæknir á Egilsstöðum ágúst-des. 1972. Sjálfstætt starfandi tannlæknir á Hvolsvelli frá febr. 1973.



Félags- og trúnaðarstörf: Formaður bygginganefndar Hvolhrepps frá 1982. Hefur starfað að ferðamálum fyrir Hvolhrepp frá 1982. Í hreppsnefnd Hvolhrepps frá 1990. Formaður stjórnar Sælubúsins hf., Ferðaþjónustu á Hvolsvelli, frá 1993.



Viðurkenningar (fyrir námsárangur): B.D.S.-heiðursmerki frá University of Edinburgh fyrir Dental Technology 1969-70, Dall Medal in Practical Dental Mechanics 1970, Dental Prosthetics 1971-72, Operative Dental Surgery 1971-72.



Maki: 7. maí 1976, Guðbjörg Guðmundsdóttir, f. 6. maí 1953, húsfreyja. For.: Guðmundur Gunnarsson, trésmiður á Hvolsvelli, Rang., f. 26. mars 1916, og k.h. Guðrún Ágústa Sigurjónsdóttir, húsfreyja, f. 20. des. 1919.



Synir þeirra: 1) Pétur Snær, f. 1. febr. 1977, verkamaður. 2) Guðmundur Ágúst, f. 19. júní 1979, nemi við F.Su. 3) Holger Páll, f. 23. ágúst 1988.



Skyldleiki/tengdir: Haukur Clausen (tvím. við föður).





Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar