Björn B Alfreðsson
Björn Alfreðsson Baarregaard f. 29. des. 1950 á Ísafirði. Faðir: Alfred Jørgen Baarregaard, tannlæknir á Ísafirði, f. 18. jan. 1909, d. 4. mars 1970. For.: Eskild Baarregaard, landpóstur og hljómlistarmaður í Odder á Jótlandi í Danmörku, f. 26. mars 1875, d. 4. mars 1944, og k.h. Marie Baarregaard, húsfreyja, f. 24. nóv. 1876, d. 29. des. 1950. Móðir: Kristín Björg Gunnarsdóttir, húsfreyja á Ísafirði og síðar bankastarfsmaður í Reykjavík, f. 10. okt. 1918. For.: Gunnar Kristinsson, vélstjóri og vélgæslumaður í Sólbyrgi á Ísafirði, f. 8. ágúst 1891, d. 25. febr. 1977, og k.h. Elísabet Andrésdóttir, húsfreyja, f. 31. maí 1888, d. 29. maí 1965. Nám: Stúdent frá M.A. 1970. Cand. odont. frá H.Í. 1978. Tannlækningaleyfi 1. febr. 1979. Störf: Tannlæknir á Suðureyri við Súgandafjörð júní-okt. 1978. Tannlæknir hjá Ólafi Karlssyni í Reykjavík frá okt. 1978 til apríl 1980. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá apríl 1980. Félags- og trúnaðarstörf: Ritstjóri Harðjaxls 1974. Í árshátíðar- og skemmtinefnd TFÍ 1983-85. Í ritnefnd Tannlæknablaðsins 1984-86. Í orða- og fræðslunefnd TFÍ 1987-90. Maki: 25. apríl 1996 (sambúð frá 1983), Laura Bergs, f. 10. júlí 1955, stúdent frá M.R. 1975, B.A. frá H.Í. 1979. For.: Jón Helgason Bergs, lögfræðingur, forstjóri Sláturfélags Suðurlands í Reykjavík, f. 14. sept. 1927, og k.h. Gyða Magnúsdóttir Bergs, f. Scheving Thorsteinsson, húsfreyja, f. 17. des. 1930. Börn þeirra: 1) Björn Gauti, f. 22. nóv. 1983. 2) Gyða Elín, f. 23. júní 1990. 3) Kristín Björg, f. 5. febr. 1996. Skyldleiki/tengdir: Alfred J. Baarregaard (faðir). |
Mynd








