Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Viðar Konráðsson

Viðar Konráðsson f. 24. ágúst 1955 á Ólafsfirði.


Faðir: Konráð Gunnar Antonsson, sjómaður og útgerðarmaður á Ólafsfirði, f. 4. júlí 1929. For.: Anton Baldvin Björnsson, bóndi á Ytri-Á í Ólafsfirði, f. 17. febr. 1893, d. 9. apríl 1975, og k.h. Guðrún Sigurjónsdóttir, húsfreyja, f. 1. apríl 1905, d. 28. mars 1988.


Móðir: Brynhildur Einarsdóttir, húsfreyja og verkakona á Ólafsfirði, f. 13. jan. 1923. For.: Einar Einarsson, sjómaður á Ólafsfirði, f. 1. sept. 1901, d. 30. okt. 1952, og k.h. Dagbjört Guðrún Sigvaldadóttir, húsfreyja og verkakona, f. 15. júlí 1900.


Nám: Stúdent frá M.A. 1975. Cand. odont. frá H.Í. 1982. Tannlækningaleyfi 27. apríl 1983.


Störf: Tannlæknir á Ísafirði frá júlí 1982 til sept. 1983 og í Bolungarvík frá sept. 1983 til ársloka 1984. Sjálfstætt starfandi tannlæknir á Ísafirði frá febr. 1985.


Maki: 17. júní 1975, Díana Björk Hólmsteinsdóttir, f. 31. mars 1955, húsfreyja. For.: Hólmsteinn Þórarinsson, loftskeytamaður á Siglufirði, f. 1. des. 1926, og k.h. Ólína Björnsdóttir, yfirsímritari, f. 17. nóv. 1927, d. 21. okt. 1996.


Börn þeirra: 1) Konný Björk, f. 29. apríl 1974, aðstoðarmaður tannlæknis á Ísafirði. Sambýlismaður: Júlíus Símon Pálsson, f. 8. febr. 1971, matreiðslumaður. 2) Vala Karen, f. 11. ágúst 1988. 3) Lísa Marý, f. 7. maí 1990. 4) Kormákur Breki, f. 8. sept. 1993.


 




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar