Þorsteinn Pálsson f. 18. nóv. 1964 í Reykjavík.
Faðir: Páll Jónsson, tannlæknir á Selfossi, f. 22. ágúst 1924. For.: Jón Pálsson, héraðsdýralæknir í Austfirðingafjórðungi með aðsetur á Búðareyri við Reyðarfjörð, S-Múl., og síðar héraðslæknir í Suðurlandsumdæmi, búsettur á Selfossi, f. 7. júní 1891, d. 19. des. 1988, og k.h. Áslaug Ólafsdóttir Stephensen, húsfreyja, f. 23. apríl 1895, d. 30. okt. 1981.
Móðir: Þórhildur Svava Þorsteinsdóttir, húsfreyja á Selfossi, f. 4. febr. 1931. For.: Þorsteinn Tyrfingsson, bóndi í Rifshalakoti í Ásahr., Rang., f. 28. apríl 1891, d. 22. okt. 1973, og Guðbjörg Bjarnadóttir, verkakona í Reykjavík, f. 28. sept. 1886, d. 27. nóv. 1970.
Nám: Stúdent frá F.Su. 1984. Cand. odont. frá Björgvinjarháskóla, Det odontologiske Fakultet, í Noregi 1992. Tannlækningaleyfi 6. jan. 1993.
Starf: Hefur starfað með Páli Jónssyni tannlækni á Selfossi frá júní 1992.
Sambýliskona: 1993, Jónína Kristjánsdóttir, f. 3. apríl 1972, nemi í hjúkrunarfræði við H.Í. For.: Kristján Einarsson, slökkviliðsstjóri á Selfossi, f. 15. júlí 1949, og k.h. Brynhildur Geirsdóttir, húsfreyja og starfsmaður hjá Pósti og síma hf., f. 11. júní 1951.
Sonur þeirra: Kristján Patrekur, f. 21. apríl 1993.
Skyldleiki/tengdir: Ólafur Hans Grétarsson (þremenningur), Páll Jónsson (faðir), Sveinbjörn Jakobsson (tvímenningur), Sæmundur Pálsson (þremenningur), Vilhjálmur H. Vilhjálmsson (þrem. við sambýliskonu).
|