Þór Axelsson f. 10. sept. 1956 í Reykjavík.
Faðir: Axel Jónsson, bifreiðarstjóri í Reykjavík, f. 6. júní 1930. For.: Jón Matthías Sigurðsson, bóndi á Nesjavöllum í Grafningshr., Árn., f. 26. júlí 1909, d. 5. mars 1976, og k.h. Guðbjörg Guðsteinsdóttir, húsfreyja, f. 20. maí 1909.
Móðir: Margrét Halldórsdóttir, skrifstofumaður í Reykjavík, f. 25. jan. 1937. For.: Halldór Símonarson, sjómaður og verkamaður í Reykjavík, f. 9. júlí 1897, d. 25. nóv. 1986, og k.h. Óla Guðrún Magnúsdóttir, húsfreyja, f. 23. mars 1916.
Nám: Stúdent frá M.R. 1977. Cand. odont. frá H.Í. 1986. Tannlækningaleyfi 28. júlí 1986.
Störf: Rak eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá hausti 1986 til 1997. Í hlutastöðu sem skólatannlæknir hjá Reykjavíkurborg frá hausti 1986 til 1997. Tannlæknir í Noregi frá ágúst 1997. - Stundakennari við tannlæknadeild Háskóla Íslands frá hausti 1986.
Félags- og trúnaðarstörf: Í félagsheimilisnefnd TFÍ 1987-90.
Maki: 31. des. 1981, Sólveig Hrönn Björk Annieardóttir, f. 4. ágúst 1958, hjúkrunarpróf frá Hj.Í. 1981, ljósmóðurpróf frá L.M.S.Í. 1986, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur. For.: Jón Ingólfsson, málarameistari í Reykjavík, f. 18. sept. 1925, og k.h. Annie Bjarnfeld Friðriksdóttir, húsfreyja og sjúkraliði, f. 30. mars 1939, d. 5. apríl 1985.
Börn þeirra: 1) Axel, f. 10. júlí 1982. 2) Sif, f. 24. okt. 1986. 3) Björn, f. 1. okt. 1988. 4) Magnús, f. 15. maí 1991.
Skyldleiki/tengdir: Jón Viðar Arnórsson (maki tvím. við tengdamóður Þ.A.).
|