Björn M. Rögnvaldsson
Björn Marinó Rögnvaldsson f. 26. ágúst 1956 í Reykjavík. Faðir: Rögnvaldur Sigurbjörn Þórhallsson, sjómaður á Akureyri, f. 13. ágúst 1933. For.: Þórhallur Marinó Kristjánsson, sjómaður og útgerðarmaður á Hjalteyri í Arnarneshr., Eyjaf., f. 14. apríl 1909, d. 5. mars 1944, og k.h. Þóranna Guðbjörg Rögnvaldsdóttir, húsfreyja og hótelstjóri á Hjalteyri, f. 25. febr. 1912, d. 11. des. 1979. Móðir: Unnur Björnsdóttir, mataráðskona á Akureyri, f. 25. febr. 1937. For.: Björn Stefán Ólafsson, bifreiðarstjóri á Siglufirði, f. 10. júlí 1917, d. 4. nóv. 1965, og k.h. Hólmfríður Steinþórsdóttir, húsfreyja, síðar saumakona í Reykjavík, f. 25. júlí 1917. Nám: Stúdent frá M.A. 1976. Nám í lögfræði við H.Í. á haustönn 1977. Cand. odont. frá H.Í. 1986. Tannlækningaleyfi 11. mars 1987. Störf: Kennari við Barnaskóla Akureyrar 1976-1977. Aðstoðartannlæknir hjá Herði Þórleifssyni á Akureyri júní-ágúst 1986. Tannlæknir í Ólafsfirði frá sept. 1986 til sept. 1987. Hefur rekið eigin tannlækningastofu á Akureyri frá sept. 1987. Félags- og trúnaðarstörf: Fulltrúi nemenda á deildarfundum tannlæknadeildar 1984-85. Í stjórn (meðstjórnandi) Tannlæknafélags Norðurlands 1987-88 og 1994-95, ritari 1988-90 og formaður frá 1995. Maki: 27. ágúst 1983, Fanney Auður Baldursdóttir, f. 2. júní 1956, húsfreyja og tækniteiknari. For.: Baldur Kristjánsson, bóndi á Ytri-Tjörnum í Öngulsstaðahr., Eyjaf., f. 7. júní 1912, og k.h. Þuríður Kristjánsdóttir, vefnaðarkennari, f. 21. nóv. 1915. Börn þeirra: 1) Rögnvaldur Snorri, f. 29. ágúst 1981. 2) Sigurbjörg Inga, f. 19. mars 1989. 3) Ólafur Birgir, f. 5. júlí 1991. Skyldleiki/tengdir: Árni Páll Halldórsson (þrem. við maka). |
Mynd








