Björn R. Ragnarsson
Björn Ragnar Ragnarsson f. 17. sept. 1949 í Reykjavík. Faðir: Ragnar Kristinn Karlsson, læknir í Reykjavík, f. 13. maí 1924. For.: Karl Ásgeirsson, símritari á Akureyri, f. 29. sept. 1897, d. 12. sept. 1987, og k.h. Ástríður Guðrún Sigjónsdóttir, húsfreyja, f. 9. jan. 1897, d. 17. nóv. 1986. Móðir: Birna Anna Sigvaldadóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 21. sept. 1925. For.: Sigvaldi Ólafur Guðmundsson, húsasmíðameistari í Reykjavík, f. 17. mars 1892, d. 29. des. 1978, og k.h. Guðmunda Sveinbjörnsdóttir, húsfreyja, f. 27. okt. 1899, d. 27. ágúst 1981. Nám: Stúdent frá M.R. 1968. Cand. odont. frá H.Í. 1974. Tannlækningaleyfi 5. des. 1974. Framhaldsnám í tannholsfræði við University of Illinois í Chicago 1981-83, sérfræðipróf þaðan í júní 1983 og M.Sc. í júní 1984. Sérfræðingsleyfi í tannholslækningum 12. mars 1987. Störf: Tannlæknir á Akureyri 1974-75, í Vestmannaeyjum 1975-78 og í Reykjavík 1978-81. Við framhaldsnám í Bandaríkjunum 1981-84. Rak eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá 1984-2005. Frá árinu 1987 starfaði hann eingöngu að tannholslækningum. Lektor við tannlæknadeild Háskóla Íslands frá 1. sept. 1984. Félags- og trúnaðarstörf: Í stjórn Lífeyrissjóðs tannlækna frá 1986, formaður frá 1987. Formaður kennslunefndar tannlæknadeildar Háskóla Íslands 1991-92. Formaður ársþings- og endurmenntunarnefndar TFÍ 1992-94. Formaður Tannlækningastofnunar Háskóla Íslands frá 1997. Ritstörf: Isolation and Characterization of Human Periodontal Ligament Cells In Vitro (M.Sc.-ritgerð), University of Illinois 1984. - Greinar: Isolation and Growth of Human Periodontal Ligament Cells In Vitro, J. Dent. Res., 64:1985 (8), 1026-1030; Hvers vegna mistekst tannholsmeðferð?, Tannlæknablaðið, 1:1985, 13-16; Lengdarsprungur í tönnum, Harðjaxl, 1:1988, 6-9. Maki: 29. júní 1974, Ragnheiður Margrét Guðmundsdóttir, f. 17. okt. 1953, stúdent frá M.R. 1973, B.A. í íslenskum fræðum 1985, M.Paed. frá H.Í. 1995, íslenskukennari. For.: Guðmundur Benediktsson, lögfræðingur, fv. ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, búsettur á Reynistað í Skerjafirði, f. 13. ágúst 1924, og k.h. Kristín Anna Eggertsdóttir Claessen, húsfreyja, f. 1. okt. 1926. Dætur þeirra: 1) Birna Anna, f. 18. apríl 1975, háskólanemi. 2) Lára Björg, f. 1. febr. 1977, menntaskólanemi. Skyldleiki/tengdir: Ingvi Jón Einarsson (II. maki I.J.E. tvím. við maka B.R.), Jóhann G. Benediktsson (föðurbróðir maka). |
Mynd








